Um eignina
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 128,9 fm. Aðalhæð skráð 89,9 fm og rishæð 39 fm.
Gólfflötur rishæðar töluvert stærri en gefið er upp þar sem hluti er undir súð.
Nánari lýsing:
Forstofuhol með góðan skáp og parket á gólfi.
Stofa og borðstofa rúmgóð með parket á gólfi. Aukin lofthæð að hluta. Útgengt á góðar svalir til norð-vesturs og fallegt útsýni yfir borgina og Esjuna.
Eldhús með hvítri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og viftu yfir eldavél. Flísar á gólfi. Útgengt á suð-austur svalir. Opið yfir í borðstofu.
Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, baðkar með sturtu og glugga.
Ál/timbur teppalagður stigi upp á rishæð.
Sjónvarpsstofa sem er mjög rúmgóð með parket á gólfi. Gluggi með opnanlegu fagi er nýr í risi.
Lítið gluggalaust herbergi sem nýtist sem geymsla í dag (mögulega hægt að stækka og bæta við þakglugga).
Góð geymslurými undir súð.
Í snyrtilegri sameign er sérgeymsla íbúðar (ca. 7 fm).
Hjóla- og vagnageymsla í sameign í kjallara.
Þvottahús, þar sem hver er með sína vél, og gott þurrkherbergi einnig í sameign.
Góð eign í vinsælu, grónu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, alla helstu þjónustu og stofnbrautir. Stutt í Elliðaárdalinn og allt það skemmtilega sem hann hefur upp á að bjóða. Leiksvæði við húsið og góð bílastæði.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Fiskakvísl 30
Staðsetning
Allar 23 myndir
Upp ↑





















