fasteignasölur.is
Grenimelur 15
1 af 24

Um eignina

Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna: 

Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð með sérinngangi í húsinu við Grenimel 15 í Vesturbænum. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, baðherbergi, eldhús og stofu, svefnherbergi og þvottahús. Tvær geymslur fylgja íbúð. Húsið hefur verið töluvert endurnýjuð í gengum árin m.a. skipt um glugga að hluta, skólp og dren endurnýjað og húsið steinað að utan. Nú standa yfir viðgerðir og málun á gluggum og þaki. Gróinn garður sem snýr til suðurs. Frábær staðsetning, örstutt í sundlaug, verslanir, kaffihús, Háskóla Íslands og fl.

Lýsing eignar:

Sérinngangur - forstofa flísalögð og með fatahengi.
Hol með parketi á gólfi og hvítum skáp sem að hluta hefur verið breytt í vinnuaðstöðu.
Svefnherbergi er rúmgott með skápum, parket á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum. Sturta og ágæt innrétting. Opnanlegur gluggi.
Eldhús er snyrtilegt með endurnýjaðri ljósri innréttingu, ljósar flísar á milli borðplötu og skápa, korkur gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð, parket á gólfi.
Geymsla nr 1 með fínum hillum ( 4,4 m2 )
Geymsla nr 2 er undir stiga.( óskráð )

Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína vél. Hvítur skápur fylgir með. Stór sameiginlegur skjólsæll suðurgarður.

Flott eign í rólegu umhverfi í hjarta Vesturbæjar, nærri skólum, verslunum og annarri þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Grenimelur 15

107 Reykjavík
59.900.000 kr.992 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1946TegundFjölbýlishúsStærð60,4 m²Herbergi2InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20271891Fasteignamat57.400.000 kr.Brunabótamat32.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑