Um eignina
Miklaborg kynnir: Glæsilegt einbýlishús á eftirsóttum stað við Laugarásveg í Reykjavík. Húsið er falið frá götu en keyrt er upp botnlanga inn á hellulagða innkeyrslu. Húsið stendur hátt í lóðinni með miklu útsýni frá efri hæð. Húsið er með fjórum svefnherbergjum, sjónvarpsherbergi, vinnuherbergi, fjórum baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi og þremur stofum auk bílskúrs. Stórar stofur á efri hæð hússins eru með mikilli lofthæð og þaðan er útgengt á suðursvalir. Stofur rúma vel standandi veislur fyrir allt að 80 -100 manns.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Nánari lýsing: Komið er inn á flísalagt anddyri með fatahengi og til hliðar er gestasalerni. Arin stofa er neðri hæð hússins og þaðan er útgengt á timburpall sem snýr í suður. Á neðri hæðinni eru fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi auk sjónvarpsstofu sem áður var nýtt sem svefnherbergi. Hjónaherbergi er með sér baðherbergi og stórum fataskápum. Parket er á gólfum en á baðherbergjum eru flísar. Á millipalli er vinnuherbergi /skrifstofa sem vel er hægt að nýta sem svefnherbergi. Fallegur timburstigi tengir saman hæðirnar og á efri hæðina er líka sérinngangur frá norðurhlið hússins. Til hliðar við sérinngang eru bæði gestaselerni og þvottahús. Eldhús er rúmgott með fallegri innréttingu og innbyggðum tækjum. Opið er úr eldhúsi inn í stóra borðstofu. Aðalstofur hússins eru stórar með mikilli lofthæð og frábæru útsýni yfir Laugardalinn. Úr stofum er útgengt á stórar útsýnissvalir. Eigninni fylgir fallegur 30 m2. bílskúr með hellulagði innkeyrslu sem er með hitalögnum. Á lóðinni fyrir framan húsið er auðveldlega hægt að leggja fjórum bílum. Umhverfis húsið er fallegur gróðursæll garður.
Glæsilegt einbýlishús á friðsælum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Laugarásvegur 21
Staðsetning
Allar 43 myndir
Upp ↑









































