fasteignasölur.is
Aðalstræti 16
Opið hús 14. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 26

Um eignina

Borg fasteignasala og Einar Pálsson lgf. kynna fallega og björt hæð og ris að Aðalstræti 16, Akureyri. Forstofa og hæðin er alls 124,7 m2 og ris 48,7 m2, samtals 173,4 m2. 
Glæsilegt hús sem hefur fengið gott viðhald.


Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í flísalagt anddyri með flísum á gólfi og fatahengi. Stigagangur úr forstofu upp á hæðina.
Komið er inn á gang inn á hæðina með herbergjum til austurs og vesturs. Alls eru tvö herbergi á hæðinni, og tvennar stofur. Lítið þvottaherbergi er á stigapalli við inngang inn á hæðina.
Borðstofa er í opnu rými fyrir framan eldhúsið. Útgengt er á svalir til suðurs úr borðstofu.
Stigi upp í ris liggur úr borðstofu og er komið upp í miðrými sem er nýtt sem sjónvarpshol í dag. 
Svefnherbergi eru tvö í risi ásamt setustofu og litlu baðherbergi.

Annað:
-Lóðin er eignarlóð, alls 2.217,0 m² að stærð og nær töluvert upp í brekkuna vestan við húsið hvar áður voru matjurðargarðar.  
Eigninni fylgir einnig helmingshlutur í lóðinni við Aðalstræti 18 sem er nýtt sem bifreiðarstæði í dag og er lóðin við Aðalstræti 18 einnig eignarlóð.
-Ágætis geymslupláss undir súð.
-Sameiginleg útigeymsla á jarðhæð/kjallara hússins.


Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 ; einar@fastborg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Aðalstræti 16

600 Akureyri
79.900.000 kr.461 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár1900TegundFjölbýlishúsStærð173,4 m²Herbergi7InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22134921Fasteignamat81.100.000 kr.Brunabótamat81.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑