fasteignasölur.is
Rjúpnahæð 3
Opið hús 20. sept. kl. 14:00–14:30
1 af 57

Um eignina

LIND Fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson fasteignasali kynna Rjúpnahæð 3, Garðabæ.
Virkilega fallegt og vandað 296,4 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr, staðsett á fallegum útsýnisstað við Rjúpnahæð 3 í Garðabæ.
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Mikil lofthæð einkennir húsið og glæsilegt útsýni er frá stofum og svölum á efri hæð.

Eignin skiptist í anddyri, hol, rúmgóðar stofur, fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslur, þvottahús og innbyggðan bílskúr.
Skipulag neðri hæðar býður upp á möguleika á að útbúa þar sér íbúð með sérinngangi.
Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar eru í húsinu, hannaðar af Pétri Hafsteini Birgissyni innanhússarkitekt.
Parket er gegnheilt Yberaro með Jatoba-skrautlistum. Innfelld lýsing er í flestum rýmum hússins.

Nýjar innanhústeikningar eftir Berglindi Berntsen liggja fyrir og fylgja þær eigninni.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa: Rúmgóð, flísalögð og með fataskápum.
Alrými: Stórt og parketlagt rými sem í dag er nýtt sem sjónvarpsstofa. Hægt er að loka rýminu af með tvöfaldri millihurð.
Svefnherbergi I: Með fataskáp.
Svefnherbergi II: Rúmgott svefnherbergi.
Baðherbergi: Með glugga, flísalagt í hólf og gólf og með baðkari og sturtu. Frá baðherbergi er gott aðgengi, í gegnum alrýmið, að verönd og heitum potti.
Bílskúr: Innangengt er í flísalagðan bílskúr með rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Danfoss-stýribúnaður fyrir heitan pott er staðsettur í bílskúr.
Þvottahús: Er inn af bílskúr með góðri innréttingu.
Efri hæð:
Stigapallur: Parketlagður og þaðan er gengið í stofur, eldhús og svefnherbergjagang.
Samliggjandi stofur: Mjög bjartar, parketlagðar og rúmgóðar með mikilli lofthæð, innfelldri lýsingu og fallegu útsýni yfir bæinn. Úr stofum er útgengi á rúmgóðar og skjólsælar svalir til suðurs með miklu útsýni.
Eldhús: Að hluta opið að borðstofu. Í eldhúsi eru vönduð tæki og náttúrusteinn á gólfum. Stofa, borðstofa og arinstofa eru parketlagðar. Í arinstofu er veglegur og fallegur arinn.
Hjónaherbergi: Parketlagt og með fataskápum. Útgengi er á suðursvalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergi IV: Með fataskápum.
Svefnherbergi V: Með fataskápum.
Baðherbergi: Með glugga, hornbaðkari og sturtu. Flísalagt í hólf og gólf og með handklæðaofni.
Húsið að utan:
Húsið hefur alla tíð fengið gott og reglubundið viðhald.
Lóð:
Lóðin er 924 fermetrar að stærð og afgirt. Á lóðinni er heitur pottur og sólpallur úr lerki með steyptum skjólvegg. Stór hellulögð innkeyrsla og stétt eru fyrir framan húsið með hitalögnum undir. Einnig er geymsluskúr á lóðinni.
Staðsetning:
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á grónum og fallegum útsýnisstað í Garðabæ. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og helstu verslanir.
ATH skv HMS er eignin skráð 257,8fm er er um 296,4fm með óskráðum fm.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali
Sími: 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,

Rjúpnahæð 3

210 Garðabær
250.000.000 kr.843 þ./m²
Einbýlishús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1995TegundEinbýlishúsStærð296,4 m²Herbergi8InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF22201061Fasteignamat198.400.000 kr.Brunabótamat155.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 57 myndir

Upp ↑