fasteignasölur.is
Hádegisskarð 6
1 af 25

Um eignina

Borg fasteignasala og Héðinn B. Ásbjörnsson löggiltur fasteignasali kynnir 101,7 fm 4 herbergja íbúð á 2. hæð (efstu) í fjórbýlishúsi við Hádegisskarð 6 í Hafnarfirði.

Hér er á ferðinni einstaklega falleg smekkleg eign sem er vel staðsett í nýju hverfi í Skarðshlíðinni í Hafnarfirði.

Íbúðin skiptist í: forstofu/anddyri, eldhús og stofu, 3 svefnherbergi með möguleika á því fjórða og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla innan íbúðar. 6,4 fm svalir eru út frá stofu. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.

Eldhús er vel búið, gott skápa og vinnupláss helluborð frá Electrolux. 
Stofa/borðstofa er björt búin stórum gluggum og mikilli lofthæð sem gefur rýminu mikinn karakter. Úr stofunni er útgengt út á suður svalir. Stálhandrið á svölum.
Hjónaherbergið er veglegt og bjart og vel skápum búið.
Barnaherbergin er einnig í góðri stærð og björt.
Baðherbergið er sérlega smekklegt, búið sturtu upphengdu salerni og vaskinnréttingu. Flísalagðir veggir og gólf. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Allar innihurðir eru hvítar yfirfelldar og innréttingar eru frá Formus.  
Parket er á allri eigninni fyrir utan votrými. 

Að utan er húsið allt klætt með viðhaldsléttiri klæðningu og er sérlega nútímalegt í útliti.


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur hedinn@fastborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Hádegisskarð 6

221 Hafnarfjörður
76.800.000 kr.755 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn
Byggingarár2021TegundFjölbýlishúsStærð101,7 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF25122253Fasteignamat68.050.000 kr.Brunabótamat67.950.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 23, 108 ReykjavíkSími519-5500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑