1 af 31
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Kvisthagi 15, 121.3 fm 4 herb. íbúð á 2 hæð með bílskúr. Tvö svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, hægt að hafa svefnherbergin þrjú. Endurnýjað baðherbergi(2023) og endurnýjuð innrétting í eldhúsi fyrir þó nokkrum árum. Endurnýjað þak 2023 og skólplagnir voru fóðraðar út í götu 2021. Baðherbergi var endunýjða 2023 og lagnir þar endurnýjaðar að sögn. Eldhús var endurnýjað 2008. Mjög gott útsýni m.a næst smá sjávarsýn. Íbúðin þarfnast endurbóta að nokkru leiti og kominn tími á málun húss að utan og skoða þarf og hugsanlega skipta um glugga íbúðarinnar.Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 202-7812, nánar tiltekið eign merkt 02-01. Ibúðin er skráð 90,5 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-02 er skráð 6,9 fm. Eigninni fylgir bílskúr merktur 02-01-01 stærð bílskúrs er 23,9 fm , birt heildarstærð 121.3 fm. Svalir eru til suðurs út frá svefnherbergi.
Eignin skiptist í:Hol, 2 svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og baðherbergi.
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing eignarinnar:
INNGANGUR: Sameiginlegur inngangur með tveimur íbúðum.
HOL: Hol með dúk og skápum.
ELDHÚS: Eldhús með endurnýjaðri Ikea innréttingu (2008) og borðkrók.
BAÐHERBERGI: Baðherbergið var endurnýjað 2023, flísalagt, vegghengt salerni, innrétting og "walk in" sturta með glerskilrúmi. Gluggi er á baðherbergi.
SVEFNHERBERGI I: Rúmgott dúklagt herbergi með skápum, gengið út á svalir í suður með ágætu útsýni.
SVEFNHERBERGI II: Herbergi með dúk.
STOFA I: Rúmgóð dúklögð stofa með útbyggðum glugga til suðurs með góðu útsýni.
STOFA II: Rúmgóð stofa með dúk, rennihurð milli stofanna.
SÉRGEYMSLA OG SAMEIGN: Sérgeymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi þar sem hver er með sína vél. Innaf er kyndiklefi.
BÍLSKÚR: staðsetttur við hlið hússins , tveir bílskúrar saman , opið að hluta á milli. Bílskúrinn þarfnast talsverðra lagfæringa.
Húsið þarfnast málunar að utan. FRÁBÆR STAÐSETNING Í GRÓNU HVERFI.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Kvisthagi 15
107 Reykjavík
99.000.000 kr.816 þ./m²
Hæð2 svefn · 1 bað
Byggingarár1957TegundHæðStærð121,3 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF20278122Fasteignamat92.800.000 kr.Brunabótamat59.660.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 31 myndir
Upp ↑





























