fasteignasölur.is
Bergstaðastræti 45
1 af 48

Um eignina

FALLEG STUDIO ÍBÚÐ Á Í MIKIÐ ENDURNÝJUÐ ELDRA FJÖLBÝLISHÚSI Í MIÐBÆNUM - 101 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 23,1 fm.

Um er að ræða studio íbúð í risi í fimm íbúða timburhúsi á eignarlóð, byggðu 1903 á mjög eftirsóttum stað í miðbænum. Um er að ræða eitt af þessum fallegu gömlu timburhúsum í Þingholtunum.
Íbúðin á hæðinni er sjálf skráð 21,9 fm. en íbúðinni fylgir lítil geymsla í kjallara hússins sem er skráð 1,2 fm.
Gengið er inn í alrými með stofu til vinstri og inn af henni er svefnkrókurinn sem er aðskilin með vegg, til hægri við innganginn er eldhúsið og baðherbergið. Úr svefnrýminu er útgangur á svalir.  

Íbúðin hefur verið töluvert standsett á síðustu árum, m.a. eldhús, baðherbergi og gólfefni. Gólf er lagt nýlegum gólfborðum, en flísar eru á eldhús- og baðherbergisgólfi. Innrétting í eldhúsi hefur verið endurnýjuð, lítill borðkrókur. Lítið baðkar er á baðherbergi og gluggi.

- Íbúðin er skráð ósamþykkt.
- Sér geymsla og sameiginlegt þvottahús fylgir íbúðinni í kjallara.
- Svalir eru út af svefnkrók (sameiginlegar svalir með íbúð 0302)
- Íbúðin var mikið standsett í kringum árið 1995. Raflagnir í íbúðinni hafa nýlega verið endurnýjaðar svo og rafmagnstafla. 

Að sögn eiganda hefur eignin og húsið verið töluvert endurnýjað; en járnið utan á húsinu og þaki hefur verið endurnýjað á s. l. 10 árum sem og gler/gluggar íbúðarinnar. Árið 2010 voru frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar og árið 2024 voru frárennslislagnir frá húsi og út í götu endurnýjaðar. Nýleg útihurð er á húsinu.

ATH! Vinsæl staðsetning í miðbæ Reykjavíkur í nálægð við fjölbreytta þjónustu s.s. skóla, leikskóla, verslun, veitingastaði og menningarsvæði, ásamt því að stutt er í miðbæinn með allt sem hann hefur upp á að bjóða ofl.

Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf.  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

Bergstaðastræti 45

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð23,1 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
33.900.000 kr.1.468 þ./m²
Byggingarár1903InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2007030Fasteignamat29.600.000 kr.Brunabótamat18.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 52 108 ReykjavíkSími533-6050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 48 myndir

Upp ↑