fasteignasölur.is
Iðunnarbrunnur 18
1 af 43

Um eignina

Fjárfesting Fasteignasala og Smári Jónsson, löggiltur fasteignasali, kynna:
Glæsilegt parhús með tveimur íbúðum.  Eignin er skráð skv. fmr. 241,3 fm. þar af bílskúr 35,2 fm. byggt 2020.  Iðunnarbrunnur 18 113 Reykjavík.

Íbúðin á efri hæð er 114,8 fm. og íbúðin á neðri hæð 84,2 fm. auk geymslu 7,1 fm. skv. skr. FMR.
Góð aðkoma er að húsinu. Á lóð er góð geymsla.  Timburskjólveggur er milli húsa.
Íbúð á efri hæð er með tvennum svölum, hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi, gestasnyrting.  Eldhús og stofa sambyggð. Svefnherbergi / sjónvarpsherbergi með útgengt á suðursvalir.
Íbúðin er mjög björt með gólfsíðum gluggum og innfelldri lýsingu i alrými.
Íbúð á neðri hæð er með tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og alrými með eldhúsinnréttingu. Geymsla. Útgengt úr alrými út á steypta verönd.
Nánari upplýsingar Smári Jónsson Lögg. fasteignasali 864-1362  smari@fjarfesting.is

Nánari lýsing:
Gólfefni hússins er parket en flísar á blautrýmum.

Gengið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu.
Efri hæð.
Hjónasvíta,  fataherbergi og stórt baðherbergi með ljósum flísum upphengdu salerni og miklu skápaplássi.  Útgengt á svalir.
Alrými skiptist í einstaklega bjarta og glæsilega stofu og borðstofu, rúmgott eldhús með gólfsíðum gluggum.
Eldunareyja  Hægt er að sitja við eyjuna en auk þess er vinnuplássið virkilega gott og skápapláss mikið.  Vönduð tæki eru í eldhúsi.
Borðstofan og stofan deila alrýminu með eldhúsinu og er þetta rými einstaklega rúmgott og bjart með mikilli lofthæð. 
Útgengt er á svalir. Innfelld lýsing er í alrýminu.
Sjónvarpsherbergi / svefnherbergi með útgengt á suður svalir.
Gestasnyrting er flísalögð.
Steyptur stigi milli hæða og er handrið með gleri.
Neðri hæð:
Innfelld lýsing í gangi og stofu.

Svefnherbergi  með hvítum skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með stórum ljósum flísum.  Upphengt salerni og sturtuklefi. Niðurfelldur vaskur og stór innrétting.  Á baðherbergi er tengt fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum dökkum skápum.
Alrými snyrtileg innrétting i eldhúsi með ljósum neðri skápum og dökkum efri skápum. Innbyggður ísskápur og vönduð tæki.
Gengið er úr alrými út á steypta verönd.

Í bílskúr er innangengt úr anddyri  Mikið skápaplássi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara er innaf bílskúr.   
Bílskúr er fullfrágenginn, rafmagnshurðaopnari og gott plan fyrir framan.

Helstu kostir.
Hentar vel fyrir stórfjölskylduna og barnafjölskyldur.
Nálægð við skóla, leikskóla og íþróttamannvirki.
Tvær íbúðir, hægt að gera að einni.
Nálægð við útivistarperlur höfuðborgarsvæðisins


Kostnaður kaupanda vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati.  1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.  2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  4.  Umsýsluþóknun  sjá kauptilboð.

 

Iðunnarbrunnur 18

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundRað-/parhúsStærð241,3 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.3
180.000.000 kr.746 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF2305822Fasteignamat162.050.000 kr.Brunabótamat136.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 31, 105 ReykjavíkSími562-4250

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 43 myndir

Upp ↑