fasteignasölur.is
Skólavörðustígur 6B
Nýtt
1 af 64

Um eignina

Miklaborg kynnir: Einstaklega falleg og björt 2ja- 3ja herbergja íbúð við Skólavörðustíg 6B í hjarta miðbæjarins. Íbúðin er 73,5 fm á 2.hæð ( íbúð 203), og skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu og borðstofu ( möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi). Útgengi er úr stofunni og svefnherberginu á rúmgóðar suð-vestur 16fm svalir. Húsið er mikið endurnýjað og framkvæmdum ný lokið. Eftirsótt saðsetning í miðbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Bílastæðahús er hjá húsinu ásamt stæðum fyrir framan hús gegn gjaldi samkvæmt verðskrá Reykjavíkurborgar.

Bókið einkaskoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfum og fataskápum.

Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með fataskápum og útgengi út á 16,3 fm suð-vestur svalir. Harðparket á gólfum.

Þvottahús- Sérþvottahús sem gengið er inn í gegnum forstofuna með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum.( Sameiginlegt þvottahús er einnig í kjallara hússins).

Baðherbergi:- Nýlega uppgert, flísar á gólfum og veggjum. Sturtuklefi.

Eldhús: Viðar innréttingar, eldhúseyja, ísskápur, uppþvottavél og háfur. Harðparket á gólfum.

Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á 16,3 fm suð-vestur svalir. Harðparket á gólfum.

Borðstofa: Rúmgóð borðstofa sem væri hægt að bæta við öðru svefnherbergi. Harðparket á gólfum.

Geymsla; Sérgeymsla í kjallara (2,5 fm) ásamt þvottahúsi og hjóla-vagnageymslu.

Nýverið lauk umfangsmiklum framkvæmdum upp á 65.462.679 kr - á grundvelli ástandskýrslu sem Verksýn vann fyrir húsfélagið, Múr og Ráðgjöf ehf annaðist framkvæmdir og fór Verksýn með eftirlit.

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
74.900.000 kr.1019 þ./m²
+84,9% á 9 árum
20. júní 2017Þinglýstur kaupsamningur
40.500.000 kr.551 þ./m²
+28,6% á 2 árum
8. september 2015Fyrsta sala
31.500.000 kr.429 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skólavörðustígur 6B

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð73,5 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
74.900.000 kr.1.019 þ./m²
Byggingarár1986InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2004506Fasteignamat68.350.000 kr.Brunabótamat47.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 64 myndir

Upp ↑