Um eignina
Eignin getur verið laus mjög fljótlega.
Aðal sölupunktar:
- Tvö baðherbergi
- Þvottahús innan íbúðar
- Suðvestursvalir með möguleika á svalalokun
- Sérmerkt bílastæði í bílakjallara og innangengt í lyftuhús
- 18,5 fm sérgeymsla í kjallara
- Sameiginleg hjólageymsla
- Húsið er byggt 2023 af ÞG Verk. Það er steinsteypt, einangrað að utan og klætt álklæðningu, sem heldur viðhaldi í lágmarki
- Gluggar úr ál/tré með K-gleri
- Eignin getur verið laus mjög fljótlega
Um er að ræða vandaða eign í húsi sem ÞG Verk byggði. Vogabyggð er nýlegt og eftirsótt hverfi við sjávarsíðuna, stutt frá Elliðaárdal og Laugardal.
Íbúðin skiptist í anddyri/forstofu, eldhús og stofu í opnu alrými, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara, sérmerkt bílastæði í bílakjallara og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.
Nánari lýsing:
Anddyri / forstofa: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Eldhús / alrými: Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými. Vönduð innrétting frá þýska framleiðandanum Nobilia með lýsingu undir efri skápum. AEG eldhústæki: spanhelluborð, blástursofn, vifta, innbyggður kæliskápur og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Rúmgóð stofa sem er opin við eldhús. Harðparket á gólfi og útgengt á suðvestursvalir. Möguleiki er á svalalokun.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum frá GKS og harðparketi á gólfi. Baðherbergi er inn af hjónaherbergi.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting með speglaskáp. Sturta með flísalögðum botni og hertu sturtugleri, vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa og blöndunartæki frá Grohe.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Nobilia innrétting, sturta með hertu sturtugleri og vegghengt salerni.
Þvottahús: Sérrými innan íbúðar. Flísar á gólfi.
Geymsla: Sérstaklega rúmgóð 18,5 fermetra sérgeymsla í kjallara.
Staðsetning: Vogabyggð er skjólsælt og fjölskylduvænt hverfi við sjóinn. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni og upp í Elliðaárdal, og Laugardalurinn er innan seilingar. Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla og skóla.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Dugguvogur 13
Staðsetning
Allar 18 myndir
Upp ↑
















