fasteignasölur.is
Fjarðarvegur 31
1 af 19

Um eignina

Fasteignasala Þórshafnar kynnir:


 

Fjarðarvegur 31, 680 Þórshöfn.
"Fagranes" er 112,8 fermetra einbýlishús, jarðhæð og ris, byggt úr timbri árið 1953.
Á jarðhæð er gengið inn í forstofu með flísalögðu gólfi, gangur inn af henni er með nýlegu parketi á gólfum. 
Við ganginn er svefnherbergi með nýlegu parketi og loftaþiljum, gluggar á suður og vesturhlið. á móti herberginu er stofa, einnig með nýlegu parketi og gluggar á austur og suðurhlið. Við hlið svefnherbergis er flísalagt baðherbergi með baðkari og lítilli baðinnréttingu. Við hlið baðherbergis er rúmgott eldhús með flísum á gólfi og milli skápa, gluggar til vesturs og norðurs og gott útsýni yfir höfnina og Þistilfjörð.
Á móti eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, við enda þess er viðbyggð forstofa með dyrum að baklóð. 
Í þvottahúsi er stigi upp á gang á rishæð, við hann standa þrjú svefnherbergi, eitt kvistherbergi og tvö undir súð, öll með dökku parketi.
Á baklóð er sólpallur og skjólveggir.
 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Þórshafnar slf.
16.800.000 kr.149 þ./m²
+66,3% á 4 árum
19. desember 2022Þinglýstur kaupsamningur
10.100.000 kr.90 þ./m²
−27,2% á 10 árum
5. september 2012Fyrsta sala
13.867.000 kr.123 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Fjarðarvegur 31

680 Þórshöfn
TegundEinbýlishúsStærð112,8 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
16.800.000 kr.149 þ./m²
Byggingarár1953InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2167786Fasteignamat19.000.000 kr.Brunabótamat51.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðarvegi 45, 680 ÞórshöfnSími893-2925

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑