fasteignasölur.is
Þórunnarstræti 128
1 af 12

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

4ra herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara í þríbýli við Þórunnarstræti 128 - samtals 94,8 m² að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, sérgeymslu í sameign og sameiginlegt þvottahús.


Aðkoma að íbúðinni er um sameiginlegan inngang á norðurhlið hússins.
Forstofa  er með flísum á gólfi og fatahengi.  
Eldhús og stofa eru í einu opnu rúmgóðu alrými og þar er harðparket á gólfum.  Eldhúsið er með snyrtilegri ljósri innréttingu. 
Svefnherbergin eru nú þrjú og eru öll með harðparketi á gólfi og í tveimur þeirra eru fataskápar.  Eitt herbergjanna var áður eldhús og sjá má ummerki um lagnir frá þeim tíma. 
Baðherbergi er flísum á gólfi og í sturtuhorni, hvít innrétting, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Sér geymsla er innaf sameign, rétt fyrir utan inngang í íbúðina.  
Þvottahús er sameiginlegt með miðhæðinni.  

Annað
- Húsið var málað að utan árið 2021
- Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðasta áratug, s.s. innréttingar, gólfefni, ofnar og ofnalagnir. 
- Búið er að endurnýja tengla og draga nýjar raflagnir í að hluta.  Gömul rafmagnstafla.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Sér hitaveita og sér rafmagn.
- Göngufæri við miðbæinn, Glerártorg og sundlaugina og steinsnar í leikskóla og skóla.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Hvammur Fasteignasala
55.000.000 kr.580 þ./m²
+89,7% á 5 árum
11. júní 2021Þinglýstur kaupsamningur
29.000.000 kr.306 þ./m²
+20,8% á 3 árum
12. júlí 2018Þinglýstur kaupsamningur
24.000.000 kr.253 þ./m²
+11,6% á 2 árum
9. júní 2016Fyrsta sala
21.500.000 kr.227 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þórunnarstræti 128

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð94,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
55.000.000 kr.580 þ./m²
Byggingarár1951InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2151981Fasteignamat46.700.000 kr.Brunabótamat43.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 12 myndir

Upp ↑