fasteignasölur.is
Þúfubarð 13
Opið hús 16. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 33

Um eignina

Heimili fasteignasala og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna til sölu bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð að Þúfubarði 13 í 220 Hafnarfirði. Eignin er skráð 93,8 fm að stærð, þar af íbúðarrými 88,4 m2 og geymsla 5,4 m2, og skiptist í anddyri/hol, þvottahús, baðherbergi, hjónaherbergi, barnaherbergi og eldhús og stofu í opnu rými þaðan sem útgengt er á sérafnotareit eignar. Falleg íbúð í grónu hverfi. Sjón er sögu ríkari! 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is.

Nánari lýsing.

Anddyri: Rúmgott með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Þvottahús: Inn af anddyri, ágæt innrétting, vinnuborð, hillur, skolvaskur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Á gólfi eru flísar. 
Hol: Tekur við af anddyri, í dag er þar ágæt sjónvarpsaðstaða. Á gólfi er parket.
Baðherbergi: Falleg innrétting, vegghengt wc, skápur, handklæðaofn og flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili. Á gólfi og á veggjum eru flísar. 
Hjónaherbergi: Inn af stofu, nýlegir fataskápar innan herbergis og gluggi til austurs. Á gólfi er parket. 
Barnaherbergi: Inn af holi, parket á gólfi og gluggi til norðurs. 
Eldhús: Í opnu rými með borð- og setustofu. Falleg innrétting með nýlegum efri skápum, vaski og blöndunartækjum ásamt eldri uppþvottavél og stórri eyju með span helluborði og nýlegum bökunaofni. Á gólfi er parket.
Borð- og setustofa: Í opnu rými með eldhúsi, rúmgott og bjart rými með gluggum á tvo vegu og frá setustofu er útgengt á sérafnotareit íbúðar og þaðan út í sameiginlegan garð.
Íbúðinni tilheyrir sérgeymsla á hæðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 

Falleg íbúð í rólegum botnlanga þar sem stutt í alla helstu þjónustu, verslun, grunn- og leikskóla.

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Heimili fasteignasala
63.900.000 kr.681 þ./m²
+4,8% á 2 árum
16. október 2024Fyrsta sala
61.000.000 kr.650 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þúfubarð 13

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð93,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
63.900.000 kr.681 þ./m²
Byggingarár1988InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2076890Fasteignamat56.150.000 kr.Brunabótamat48.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegur 3, 2. hæð., 108 ReykjavíkSími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑