fasteignasölur.is
Hólmasund 6
1 af 32

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja neðri sérhæð (þrjú svefnherbergi) með sérinngangi við Hólmasund 6, 104 Reykjavík. Frá stofu er gengið út á skjólsæla suðvesturverönd og þaðan út í sameiginlegan stóran garð. Eldhús og þvottahús hafa verið endurnýjuð og og hurðar sprautaðar. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 120,0 fermetrar. Byggingarár 2000.

Um er að ræða fallega og fjölskylduvæna eign í grónu hverfi. Góð aðkoma er að húsinu, leikvellir fyrir framan og aftan húsið, leikskóli í 30m fjarlægð og næg bílastæði.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu alrými, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús með geymslu inn af.

Sérstakir kostir:
- Sérinngangur
- Endurnýjað eldhús og þvottahús
- Skjólsæl suðvesturverönd með timburpalli
- Útgengt á lóð úr hjónaherbergi
- Sameiginlegur og gróinn garður með leiktækjum fyrir börn
- Bílastæði við húsið

Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi og góðir fataskápar.
Eldhús (endurnýjað 2019): Falleg hvít innrétting í L-lagi með góðu skápa- og vinnuplássi. Löng eyja með ljósri borðplötu og sætum við barborð. Spanhelluborð, bakaraofn í vinnuhæð og háir skápar með plássi fyrir ísskáp. Eldhúsið er opið inn í stofu.
Stofa / borðstofa: Stórt og sérlega bjart alrými með stórum gluggum og harðparketi á gólfi. Gott pláss er fyrir borðstofuborð og setustofu. Útgengt á suðvesturverönd.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum og harðparketi á gólfi. Úr herberginu er útgengt út á lóð um tvöfalda hurð.
Svefnherbergi I: Harðparket á gólfi og fataskápur. 
Svefnherbergi II: Harðparket á gólfi og fataskápur. 
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu og sturtugleri, innrétting með skúffum undir vaski og speglaskápur með lýsingu.
Þvottahús (endurnýjað 2019): Rúmgott þvottahús innan íbúðar með góðu skápa- og vinnuplássi.
Verönd: Hellulögð suðvesturverönd með timburpalli og skjólveggjum, að hluta yfirbyggð. Frá veröndinni er gengið beint út í garðinn.

Staðsetning: Eftirsótt staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi í 104 Reykjavík. Stutt er í Laugardalinn, leikskóla, skóla, verslanir og alla helstu þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski –
löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000

Skoða meðmæli -  Verðmat fasteigna -  Lúxus fasteignir -  Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Hólmasund 6

104 Reykjavík · Vogar
TegundHæðStærð120 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
104.900.000 kr.874 þ./m²
Byggingarár2000InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2246860Fasteignamat97.650.000 kr.Brunabótamat61.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑