fasteignasölur.is
Perla Inv. - Einbýlishús í Benijófar
1 af 19

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir: Einbýlishús í Benijófar

Þetta glæsilega einbýlihús er staðsett í sjarmerandi bænum Benijófar á Costa Blanca ströndinni.

Húsið sem er á tveimur hæðum er með 3 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum með hita í gólfi. Með húsinu fylgja heimilistæki í eldhúsi og loftræstikerfi, einnig er sér garður með sundlaug og bílastæði inn á lóð.

Einstaklega vel staðsett eign þar sem öll nauðsynleg þjónusta er í göngufæri svo sem, veitingastaðir, bankar, apótek, heilsugæsla, barir og skóli, sem gerir sem gerir þetta að fullkomnum stað til að finna nýtt heimili á Spáni hvort sem er til lengri eða skemmri tíma. Einnig er örstutt á glæsilega golfvöllinn La Marquesa, 18 holu golfvöll með allt til alls fyrir golfspilarann. Fyrir náttúruunnendur eru fjölmargar náttúruperlur allt í kring um bæinn og má þar meðal annars nefna Saltvötnin í Torrevieja og náttúruverndarsvæðið El Recorral þar sem vinsælt er að fara í lautarferð og fylgjast með iðandi fuglalífinu eða skella sér í göngutúr á þeim ótal gönguleiðum á svæðinu.

Innan við 10 mín akstur er svo að finna hina 11 kílómetra löngu gullnu strandlengju við Guardamar del Segura sem fengið hefur vottun Evrópusambandsins fyrir gæði sjávar og þjónustu í formi Bláa fánans, auk þess sem Torrevieja er stutt frá. Svo er einnig stutt í verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia og aðeins 30 mínútur frá flugvellinum í Alicante.

Endilega hafðu samband til að fá meiri upplýsingar um þessa glæsilegu eign!

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á: https://perlainvest.com/eign/6688/einbylishus-i-benijofar/

REF: NB-47678

Fylgdu okkur á Facebook -www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com

Perla Inv. - Einbýlishús í Benijófar

1053 Spánn - Costa Blanca
TegundEinbýlishúsStærð138 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.3
64.900.000 kr.470 þ./m²
FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 19 myndir

Upp ↑