Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og mikið endurnýjuð 96,2 m2, 3ja herbergja íbúð með fallegu útsýni á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi við Þrastarhöfða 6 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 96,2 m2, þar af íbúð 92,5 m2 og geymsla 3,7 m2. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og forstofu. Sérgeymsla er í kjallara. Um er að ræða íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í Lágafellsskóla, leikskóla, Lágafellslaug og World Class, en auk þess er golfvöllur í næsta nágrenni.
Skv. upplýsingum frá seljanda var nýlega endurnýjað: Eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskápum og teppi á gólfi.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvesturátt.
Eldhús er inn af stofu og með parket á gólfi. Falleg innrétting með eyju. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vaskur.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með teppi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Geymsla innan íbúðar er með geymsluskáp og parketi á gólfi. Er í dag notuð sem skrifstofa.
Baðherbergi er flísalagt. Á baði er baðkar með sturtuaðstöðu með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn, vegghengt salerni og falleg innrétting.
Þvottahús er inn af baðherbergi og með flísum á gólfi, hillum og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara, skráð 3,7 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Verð kr. 82.000.000
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Þrastarhöfði 6
Staðsetning
Allar 38 myndir
Upp ↑




































