fasteignasölur.is
Birtingakvísl 10
Opið hús 16. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 32

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Um er að ræða raðhús á 2 hæðum sem er 105,3 fm skv. fasteignaskrá Þjóðskrár. Húsið er þó nokkuð stærra en uppgefin stærð þar sem hluti efri hæðar er undir súð auk þess sem gott risloft er yfir íbúðinni sem er nýtt sem herbergi í dag. Góð aðkoma, merkt bílastæði og sólpallur mót suðri.
Eignin skiptist í; Forstofu, hol, gestasnyrtingu, eldhús og rúmgóða stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi á efri hæð auk baðherbergis og herbergis í rislofti.

Nánari upplýsingar veita:
Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916  eða halldor@fastgardur.is


Nánari lýsing; 
Anddyri:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Gestasnyrting næst forstofu er flísalögð með upphengdu salerni og handlaug.
Opið alrými tengist eldhúsi og rúmgóðu stofurými með stofu og borðstofu.
Eldhús er með fallegri innréttingu, vandaður bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Gluggi með opnanlegu fagi er í eldhúsi.
Stofan er í opnu og björtu rými með gluggum og hurð mót suðri en gengið er út á rúmgóðan, afgirtan sólpall frá stofunni.
Gólfin á neðri hæð eru flotuð. 
Efri hæð; þar eru 3 góð svefnherbergi, hjónaherbergi með skápum og tvö góð barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt og með walk in sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og tenging fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Gott rými er á efri hæð fyrir framan svefnherbergin með góðum fataskápum. Frá holinu er hægt að komast upp á mjög snyrtilegt, manngengt risloft yfir íbúðinni sem er nýtt sem svefnherbergi í dag.
Geymsla: Við ingang hússins er sameiginleg geymsla með næsta húsi, þar eru inntök fyrir vatn og rafmagn og ágæt áhalda og hjólageymsla.
Lóðin: Út frá stofu er góð timburverönd með skjólveggjum sem snýr til suðurs. Möguleiki að að labba beint út á bílastæði frá sólpallinum. 

Þetta er góð eign á góðum stað í Ártúnsholti, í rólegu hverfi þar sem örstutt er í aðalstofnæð borgarinnar. Afgirt verönd mót suðri. Stutt í leikskóla og skóla og alla þjónustu, göngu og útivistarsvæði.

 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Birtingakvísl 10

110 Reykjavík · Árbær/Selás
TegundRað-/parhúsStærð105,3 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
93.900.000 kr.892 þ./m²
Byggingarár1987InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2043626Fasteignamat88.800.000 kr.Brunabótamat60.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑