fasteignasölur.is
Mávabraut 3A
1 af 24

Um eignina

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 4ra herbergja nýuppgert endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskýli.

------ Eignin er laus við kaupsamning - Þrjú svefnherbergi - Tvö fullbúin baðherbergi ------


Á neðri hæð er forstofa, hol, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofa og á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Forstofa er flísalögð og þar er skápur.
Í þvottaúsi er epoxy á gólfi og hillur á vegg.
Stofa er parketlögð og hurð er út á verönd á baklóð frá stofu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er nýleg innrétting ásamt tækjum. 
Á baðherbergi eru flísar á gólfi, þar er innrétting,led spegill, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og handklæðaofn.  Allt er nýlegt á baðherbergi nema baðkar.

Góður járnstigi með tréþrepum er á milli hæða. 

Svefnherbergin eru þrjú á efri hæðinni og hafa þau öll málað gólf.(Málað með epoxy yfir flísar). Góður skápur er í hjónaherbergi.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi, þar er ný innrétting og tæki, led spegill, sturtuklefi og upphengt salerni. Allt er nýlegt á baðherbergi.

*Hurð er út á svalir frá hjónaherbergi. Svalir í vestur.
*Allt er nýlegt á báðum baðherbergjum.
*Allt er nýlegt í eldhúsi - Ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni.
*Búið er að endurnýja þakján.
*Búið er að endurnýja glugga og gler, útidyrahurð og svalahurðir.
*Afgirt verönd er á baklóð.

Nánari upplýsingar veitir Halldór Magnússon lfs. 
S:  420-4000 / 863-4495 - dori@studlaberg.is   


 

Mávabraut 3A

230 Reykjanesbær · Keflavík
TegundRað-/parhúsStærð89,2 m²Herbergi3Svefnherb.3Baðherb.2
63.400.000 kr.711 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2089903Fasteignamat55.150.000 kr.Brunabótamat49.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 20, 230Sími420-4000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑