fasteignasölur.is
Hringbraut 95
1 af 24

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýli á eftirsóttum stað í Vesturbænum. Aðkoma að húsinu er frá Grandavegi og snýr íbúðin aðeins í þá átt. Íbúðin er skráð 75,7 fm og skiptist í anddyri/hol, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi og 6,1 fm sér geymslu í kjallara. Sérmerkt stæði fyrir húsið eru á lóðinni.

Nánari lýsing:
Anddyri/hol: Gengið er inn úr snyrtilegri sameign og inn í rúmgott hol með fatahengi.
Stofa: Rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á góðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Nýlega endurnýjað með innréttingum frá Brúnás, góðu skápa- og vinnuplássi og bakaraofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og góðum fataskáp frá Brúnás.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega uppgert með "walk in" sturtu, innréttingum frá Brúnás, upphengdu salerni, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: 6,1 fm sér geymsla í kjallara.
Í sameign er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.

Frábær staðsetning í góðu og eftirsóttu hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, skóla, leikskóla og falleg útivistarsvæði.

Nánari upplýsingar veitir:
Alfreð Valencia, löggiltur fasteignasali, í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is
Oddný María Kristinsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 777-3711 eða á oddny@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Hringbraut 95

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð75,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
69.900.000 kr.923 þ./m²
Byggingarár1972InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2025304Fasteignamat59.200.000 kr.Brunabótamat41.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑