fasteignasölur.is
Rauðamýri 13
Opið hús 17. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 38

Um eignina

** Opið hús fimmtudaginn 17. september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar S: 586-8080 kynnir: 163,3 m2 raðhús með innbyggðum bílskúr í botnlanga við Rauðamýri 13 í Mosfellsbær. Eignin er skráð 163,3 m2, þar af raðhús 131,4 m2 og bílskúr 31,9 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, þvottahús, sjónvarpshol, eldhús, borðstofu, stofu og bílskúr. Hellulagt bílaplan er fyrir framan húsið og stór afgirt timburverönd í bakgarði. Fallegt útsýni. Mikil lofthæð í stofu sem gerir eignina bjarta og skemmtilega. Gólfhitakerfi er í eigninni.
Skólar, leikskólar og sundlaug eru í göngufæri, undirgöng liggja undir Vesturlandsveg. Stutt í skemmtilegar gönguleiðir úti í náttúrunni. Góð tenging við stofnbraut til Reykjavíkur.

Smelltu hér til að fá söluyfirlitið sent strax


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum.
Eldhús og borðstofa eru með flísum á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting með eyju, granít borðplata. Í innréttingu er uppþvottavél, bakaraofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa er með parket á gólfi og mikilli lofthæð. Úr stofu er gengið út á afgirta timburverönd og bakgarð í vesturátt.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu með granít borðplötu, baðkari, "walk-in" sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á timburverönd.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er útgengt út á bílaplan og innangengt inn í bílskúrinn.
Bílskúr er rúmgóður, með epoxý á gólfi og rafdrifnum bílskúrshurðaopnara. Geymslupláss og geymsluloft er innst í bílskúr.

Verð kr. 121.000.000,- 
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Rauðamýri 13

270 Mosfellsbær
TegundRað-/parhúsStærð163,3 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
121.000.000 kr.741 þ./m²
Byggingarár2007InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2298444Fasteignamat116.600.000 kr.Brunabótamat88.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKjarni - Þverholti 2, 270Sími586-8080

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 38 myndir

Upp ↑