fasteignasölur.is
Langholtsvegur 146
Opið hús 20. sept. kl. 14:00–15:00
1 af 19

Um eignina

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja neðri sérhæð í tvíbýli að Langholtsvegi 146, 104 Reykjavík með sérinngangi. Rúmgóð íbúð, skráð 97 fm, með afgirtum sameiginlegum garði með palli í rólegum botnlanga.


Skoðaðu eignina í 3D hér. 


Nánari lýsing eignar:
Gengið er beint inn um sérinngang inn í anddyri og þaðan inn í hol/gang þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur íbúðar.  
Eldhúsið er með fallegri hvít málaðri upprunalegri innréttingu. Góður gluggi og parket á gólfum. 
Stofa og borðstofa er björt með gluggum í suður og austur. Parket á gólfum.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og stórum innbyggðum skáp.
Barnaherbergið er með parketi á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari með sturtu og hvít nýleg innrétting.
Í sameign er jafnframt stórt herbergi sem nýtt er sem þvottahús, hjólageymsla og þar er hvor íbúð um sig með geymsluhillu. 
Bílastæði fylgir eigninni. 

Framkvæmdir:
Árið 2024 voru gluggar málaðir að utan. 
Lagnir voru myndaðar árið 2019 og metnar í lagi. 
Skipt hefur verið um ofna og rafmagnstafla endurnýjuð af fyrri eiganda. 
Til stendur að skipta um glugga í stofu (tvennir gluggar) og gler í minna svefnherbergi á kostnað seljanda. 



Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og ýmsar verslanir. 


Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Langholtsvegur 146

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð97 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.900.000 kr.824 þ./m²
Byggingarár1957InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2022600Fasteignamat78.050.000 kr.Brunabótamat49.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑