1 af 16
Um eignina
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Halldóruhagi 14 íbúð 201 - Falleg 3-4ra herbergja íbúð með sér inngangi á efri hæð í fjórbýlishúsi í Hagahverfi - stærð 101,8 m²
* Sér inngangur
* Sér þvottahús
* Auka snyrting
* Vandaðar innréttingar og aukin lofthæð
* Suður svalir
Íbúðin er í vestur hluta hússins á efri hæð og skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, tvö svefnherbergi, geymslu sem hefur verið nýtt sem svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu og þvottahús. Sameiginleg geymsla/tæknirými er með íbúð á neðri hæðinni.
Forstofa er með gráum flísum á gólfi og stórum tvöföldum skáp.
Eldhús, vönduð tvílit innrétting og eyja með dökkri borðplötu. Ísskápur með frysti og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í alrými þar sem ljóst harðparket er á gólfum og loft eru tekin upp. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar suður svalir með dökku glerhandriði.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu harðparketi á gólfi og fataskápum. Stærð herbergja er skv. teikningum 10,1 og 13,3 m².
Geymsla innan íbúðar hefur verið notuð sem svefnherbergi, þar er ljóst harðparket á gólfi og stór opnanlegur gluggi. Geymslan er skv. teikningum 6,4 m² að stærð.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og tveimur veggjum, vönduð grá innrétting með dökkri borðplötu og speglaskápur, upphengt wc, handklæðaofn, walk-in sturta og opnanlegur gluggi.
Snyrting er til hliðar úr forstofunni með gráum flísum á gólfi, hvítri innréttingu með handlaug og upphengdu wc.
Þvottahús er með gráum flísum á gólfi og grárri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og vask.
Sameiginlegt tæknirými/geymsla er á neðri hæðinni með lökkuðu gólfi.
Annað
* Loft eru tekin upp í öllum rýmum íbúðar.
* Gólfhiti er í allri íbúðinni og auk þess eru ofnar í forstofu og á baðherbergi.
* Útsog er úr þvottahúsi, snyrtingu, baðherbergi og alrými.
* Allar innréttingar eru plastlagðar og frá GKS.
* Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni með rafmagnstengli tengdum rafmagnsmæli íbúðar.
* Eignin er í leigu til 1.4.2027
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Halldóruhagi 14 íbúð 201
600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð101,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
75.900.000 kr.746 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2502507Fasteignamat66.250.000 kr.Brunabótamat67.450.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 16 myndir
Upp ↑