Um eignina
Miklaborg kynnir: Vönduð og vel hönnuð íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi í nýju hverfi rétt við Stekkjarskóla, á Selfossi. Húsið er staðsteypt, klætt að utan með litaðri álklæðningu, þak er einhalla klætt með tvöföldu lagi af soðnum pappa. Gluggar og hurðir eru úr ál/tré frá IDEAL. Gluggar í stofu og eldhúsi eru gólfsíðir og eru íbúðin mjög björt og vel skipulögð.
Nánari lýsing
Íbúðin sem er á efri hæð er skráð 123,9m2 að stærð. Að innan skiptist hún í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk geymslu. Íbúðinni er fullbúinn, lóðin er þökulögð og bílaplan er malbikað. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Fataskápar eru í öllum herbergjum og forstofu. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum. Harðparket er á gólfum utan votrýma sem eru flísalögð. Sér bílastæði og gert ráð fyrir hleðslustöð. Hjól/vagnageymsla er í sameign. Staðsetning er mjög góð en húsið stendur rétt við nýjan grunnskólann Stekkjarskóla. Vandaður frágangur og gott skipulag.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
eða Þórhallur Axel Þrastarson aðstoðarmaður fasteignasala í síma 6965240 eða thor@miklaborg.is
Móstekkur 10C
Staðsetning
Allar 10 myndir
Upp ↑








