fasteignasölur.is
Hæringsstaðir
1 af 9

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Seljandi skoðar ýmiss skipti.

Hæringsstaðir í Svarfaðardal, Dalvíkurbyggð.
Einbýlishús sem skráð er 202,0 m² að stærð ásamt útihúsum sem samtals telja 299,5 m² og skráð eru sem fjós og hlaða. Lóðin er eignarlóð sem skráð er 8.530 m² að stærð. 

Íbúðarhúsið er orðið lélegt og ekki íbúðarhæft. Húsið er steypt og á tveimur hæðum og skiptist þannig að á efri hæð er forstofa, gangur, eldhús, 5 svefnherbergi, stofa og baðherbergi.
Kjallarinn skiptist í þvottahús, 2 svefnherbergi, stofu og geymslur.
Pallur með skjólgirðingu stendur sunnan við húsið.

Útihúsin eru skráð sem fjós sem er 176,7 m² hefur verið innréttað sem verkstæði og þar er stór innkeyrsluhurð. 
Sambyggt fjósinu er hlaða sem skráð er 122,8 m² og þar eru ekki steypt gólf.  Yfir hluta hlöðunnar er lokað geymslurými.  

Húsin þarfnast orðið mikið viðhalds en staðsetning er skemmtileg á friðsælum og fallegum stað í Svarfaðardal - u.þ.b. 17 km fjarlægð frá Dalvík.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hvammur Fasteignasala
55.000.000 kr.109 þ./m²
+478,9% á 14 árum
9. október 2012Fyrsta sala
9.500.000 kr.19 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hæringsstaðir

621 Dalvík (dreifbýli)
TegundEinbýlishúsStærð502,5 m²Herbergi8Svefnherb.7Baðherb.1
55.000.000 kr.109 þ./m²
Byggingarár1947InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2155828Fasteignamat54.200.000 kr.Brunabótamat119.150.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑