fasteignasölur.is
Langahlíð 21
Opið hús 22. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 50

Um eignina

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð við Lönguhlíð 21 í mikið endurnýjuðu húsi á eftirsóttum stað.

Heildarstærð eignarinnar er 81 fermetrar, þar af er íbúðin 68,4 fermetrar, geymsla í kjallara 6,2 fermetrar og herbergi í risi 6,4 fermetrar. Fallegur sameiginlegur garður er framan við húsið og sameiginleg bílastæði bakatil. Suðvestursvalir með fallegri kvöldsól.


Pláss til að vaxa
Með íbúðinni fylgir herbergi í risi með aðgangi að sameiginlegri snyrtingu, tilvalið sem vinnuaðstaða eða tómstundarými utan íbúðarinnar. Skipulag íbúðarinnar býður einnig upp á að bæta við herbergi, t.d. með því að stúka af hluta stofu eða færa eldhús.

Stóru framkvæmdirnar búnar
Á síðustu árum hefur húsið verið mikið endurnýjað samkvæmt seljanda og þar á meðal múrviðgert og endursteinað, þakjárn og rennur endurnýjuð, gluggar endurnýjaðir með hljóðeinangrandi gleri, svalir múraðar og svalahurð endurnýjuð. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflur og dyrasíma fyrir húsið ásamt viðhaldi á útihurðum. Þær framkvæmdir sem oft bíða eigenda í eldri húsum hafa því þegar verið unnar.

Lýsing eignar:
Inngangur, flísalagt andyri og teppalagt stigahús.
Forstofa, parketlögð og rúmgóð með fataskáp.
Eldhús, dúklagt og bjart með upphaflegri innréttingu hluta og nýrri að hluta. Ný uppþvottavél og ískápur fylgja.
Stofur, samliggjandi setustofa og borðstofa, rúmgóðar, bjartar, parketlagðar og útgengt á suðvestursvalir. Úr stofunum er fallegt útsýni yfir á Klambratún. 
Herbergi, dúklagt og rúmgott með fataskáp.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og hluti veggja, upphengt salerni, innrétting, skápur og baðkar með sturtu.
Herbergi í risi, parketlagt með þakglugga og aðgengi að sameiginlegu salerni.

Í kjallara hússins eru:
Sameiginlegur inngangur
frá bílastæðum flísalagt andyri og teppalagt stigahús.
Sér geymsla, með glugga með máluðu gólfi og hillum. 
Sameiginlegt þvottaherbergi, rúmgott, lakkað gólf og sér tenglar fyrir hverja íbúð.
Sameiginlegt þurrkherbergi, rúmgott, lakkað gólf og með glugga.

Húsið að utan lítur vel út og hefur alltaf hlotið gott viðhald. Hægt er að ganga inn í húsið bæði inn um kjallaradyr bílastæðamegin og inn um aðalinngang vestanmegin. 

Lóðin er fullfrágengin og stór með hellulagðri stétt, grasflöt að framan, sameiginlegum bílastæðum bakatil og er í óskiptri sameign hússins.

Staðstetning eignarinnar er á vinsælum stað í austurbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla Íslands, Sundhöllina, Klambratún og miðbæ Reykjavíkur. 

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarinsehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Langahlíð 21

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð81 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
68.500.000 kr.846 þ./m²
Byggingarár1947InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2013487Fasteignamat64.800.000 kr.Brunabótamat41.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangÓðinsgata 4, 101 ReykjavíkSími570-4500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 50 myndir

Upp ↑