fasteignasölur.is
Norðurbraut 1
1 af 28

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : 
Fallegt 197,4fm 5-6 herbergja einbýlishús á einni hæð. Skipting hússins er eftirfarandi, hús skráð : 125,6fm, sólstofa : 30,6fm og bílskúrinn 41,2fm.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú til fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sólstofu. Glæsilegur afgirtur garður er umhverfis húsið. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa með skáp, flísar á gólfi.
Eldhúsið var endurnýjað 1999, hvít innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, góður borðkrókur við glugga, dúkur á gólfi.
Stofan snýr í vestur og suður, teppi á gólfi. Gengið er í gegn um stofuna til inn í rúmgóða sólstofu, flísar á gólfi, gler í veggjum og lofti. Rafmagnsofn er í sólstofu og tvær hurðir út í garð, bæði til suður og vesturs.
Þvottahús : innaf eldhúsi með vaski og skápum, epoxí á gólfi. Úr þvottahúsinu er hægt að ganga inn í flísalagt rými þar sem hurð er bæði inn í bílskúr og sólstofu.
Gangur með innfelldum skápum, parketi á gólfi
Þrjú svefnherbergi, öll rúmgóð með dúk á gólfi. Herbergin voru áður fjögur og auðvelt að breyta til fyrrahorfs. Fataskápar eru í tveimur herbergjana.
Rúmgott baðherbergi með baðkari og góðri sturtu, innréttingu við vask, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Bílskúrinn er með steyptri plötu og geymsla í vesturendanum. Nýlegar hurðir eru á bílskúrnum. Möl er í innkeyrslu.
Garðurinn í kring um húsið er afgirtur með fallegum gróðri og þvottasnúrum.

Einangrun er neðan á loft í húsinu með frauðplasti og búið er að láta blása inn á loftið auk þess sem skipt var um gler í gluggum og lækkaði hitakostnaður verulega við það að sögn eigenda. Þakið var málað fyrir 2 árum síðan. Búið er að skipta um hitakút.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Norðurbraut 1

780 Höfn (Hornafjörður)
TegundEinbýlishúsStærð197,4 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
74.900.000 kr.379 þ./m²
Byggingarár1973InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF2181090Fasteignamat70.700.000 kr.Brunabótamat94.820.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑