fasteignasölur.is
Sambyggð 18
1 af 40

Um eignina

Domusnova fasteignasala og SVerrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
3ja - 4ra herb. enda íbúð með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum í stofu og eldhúsi, sér inngangi og suðvestur sólpalli í 3ja hæða fjölbýli. E


Íbúð: Sér inngangur er inn í 84,5 fm íbúðina sem er á 1. hæð. Hún skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurkara, geymslu innan íbúðar og nærri 40 fm alrými eldhúss og stofu. Möguleiki á að bæta við 3ja svefnherberginu þar. Lofthæðin er nærri 280 sm sem gefur upplifun á meira rými. Gengið er út í garðinn á steyptan sérafnotareit. Gólfefni eru harðparket og flísar. Bað- og eldhúsinnréttingar er hvít sprautulökkuð með gráum borðplötum og burstuðu stáli á milli skápa í eldhúsinu. Hvítar innihurðar. 

Sameignin telur stigahús með lyftu, lagna-, hjóla- og vagnageymslu.  
Húsið er stálgrindarhús einangrað að utan með innbrenndu áli. Lítið sem ekkert utanhús viðhald. Þrefalt gler í gluggum.
Lóð t frágengin með grasflötum, lýsingu, göngustígum og bílastæðum. Rafbílahleðsla er á bílastæði. 

Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali í S: 662-4422 eða sverrir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Sambyggð 18

815 Þorlákshöfn
TegundFjölbýlishúsStærð84,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
48.900.000 kr.579 þ./m²
Byggingarár2020InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2510391Fasteignamat50.300.000 kr.Brunabótamat52.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 4, 2. hæð, 201 KópavogurSími527-1717

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑