1 af 45
Um eignina
Hús fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu eignina Hraunhella 3, 800 Selfoss.
Fallegt og vel skipulagt 217,4 fm einbýlishús á einni hæð við Hraunhellu 3 á Selfossi. Húsið var byggt árið 2018, er steinsteypt og klætt með álklæðningu. Um er að ræða bjarta og fjölskylduvæna eign með góðu flæði milli rýma, fjórum svefnherbergjum, rúmgóðu alrými og góðu útisvæði.
Eignin skiptist í anddyri, gestasalerni, stofu og eldhús í opnu og björtu alrými, sjónvarpshol, þvottahús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóðan bílskúr.
Anddyri: er með stórum og rúmgóðum fataskápum. Frá anddyri er aðgengi að forstofuherbergi.
Gestasalerni: er snyrtilegt og vel útbúið, með upphengdu salerni, handlaug og sturtuklefa.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með stórri rennihurð út á suðurpall. Dimmerar á ljósum og hljóðdempandi plötur. Upptekið loft með innfelldri lýsingu tengir stofu og eldhús saman í fallegu og opnu alrými.
Eldhús: Glæsilegt og rúmgott eldhús í opnu rými . Mjög stór innrétting og stór eyja með góðu barplássi. Vínkælir, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp, innbyggð uppþvottavél, örbylgjuofn og bakaraofn í vinnuhæð. Innfelldar innstungur með þrýstilokum eru í innréttingu og gott vinnupláss er til staðar. Blöndunartæki frá Grohe
Sjónvarpshol: er staðsett við alrýmið og býður upp á notalegt rými fyrir fjölskylduna. Rennihurð skilur sjónvarpsholið frá stofunni og gefur möguleika á að loka rýminu af eftir þörfum.
Baðherbergi: er rúmgott og snyrtilegt, flísalagt í hólf og gólf. Þar er upphengt salerni, falleg innrétting, gólfsturta og baðkar. Útgengt er úr baðherberginu á pall og þaðan út í garð.
Svefnherbergin: eru fjögur. Tvö barnaherbergi eru með góðum fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott, með sér fataherbergi.
Geymslupláss: Rúmgóð og upphituð geymsla fyrir ofan herbergjagang, aðgengileg um lúgu með stiga. Lýsing er í geymslunni.
Þvottahús: er með góðri innréttingu og góðu skápaplássi ásamt skolvaski. Þaðan er innangengt í bílskúr og einnig útgengt í bakgarð.
Bílskúr er skráður 41,8 fm. Hann er flísalagður og með góðu millilofti sem býður upp á aukið geymslupláss.
Gluggar eru úr ál/tré og húsið er vandað að frágangi. Útivistarsvæðið er sérlega skemmtilegt, með rúmgóðum lerkitrépalli til suðurs og heitum potti.
Gólfefni: Vínylparket er á gólfum í anddyri, forstofuherbergi, stofu, eldhúsi, sjónvarpsholi, herbergjagangi, barnaherbergjum, hjónaherbergi og þvottahúsi. Flísar eru á gestasalerni, baðherbergi og í bílskúr.
Lagt hefur verið fyrir öryggismyndavélum.
Saunahús: Á lóðinni er vandað, 9 fm saunahús með sérstöku afslöppunarrými. Húsið er í smíðum og getur verið afhent fullbúið og fylgt með kaupum eftir nánara samkomulagi á milli seljanda og kaupanda. Saunahúsið er einangrað með 100 mm steinull til að það hitni hratt og haldi hita vel. Þar er saunahurð og ofn frá Harvia, flísalagt gólf með niðurfalli, bekkir úr thermowood og fullbúið loftunarkerfi.
Garðhús: 15 fm upphitað og einangrað garðhús, byggt á staðnum á steyptri plötu. Húsið er klætt með standandi klæðningu og bárujárni á þaki. Þar er rafmagn, tvöfalt hurðaspjald og rafmagnstenglar að utan.
Útisvæði
Á suðurhlið hússins er stór lerkitimburpallur með stórri rennihurð úr stofu og eldhúsi. Á pallinum eru lagnir fyrir rafmagn og heitur pottur sem hægt er að stýra þráðlaust yfir Wi-Fi.
Lóðin er 973 fm eignarlóð, stór og vel gróin með þökulögðum flötum. Gert er ráð fyrir snjóbræðslu í innkeyrslu. Reistur hefur verið veggur milli hússins og nágranna til vesturs og steyptur veggur er í smíðum til austurs.
Hér er um að ræða einstaklega vandað og vel byggt einbýlishús í rólegu og eftirsóttu hverfi á Selfossi. Húsið býður upp á vel skipulagt fjölskyldurými, fjögur svefnherbergi, stóran bílskúr, góða geymslumöguleika og glæsilegt alrými með stofu og eldhúsi.
Lóðin og útisvæðin setja svo sérstakan svip á eignina, með stórum suðurpalli, heitum potti, vönduðu saunahúsi og upphitaðri geymslu. Vandað heimili þar sem byggingargæði, gott skipulag og fjölskylduvænt umhverfi fara saman.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hraunhella 3
800 Selfoss
TegundEinbýlishúsStærð217,4 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
124.900.000 kr.575 þ./m²
Byggingarár2018InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2340758Fasteignamat124.750.000 kr.Brunabótamat132.700.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 45 myndir
Upp ↑