fasteignasölur.is
Grenigrund 16
1 af 29

Um eignina

Garðatorg eignamiðlun. Sölumaður Sigurður s. 8983708. 
Einstaklega falleg og vel skipulögð efri sérhæð með fjórum svefnherbergjum, ásamt rúmgóðum bílskúr, á rólegum og eftirsóttum stað í Kópavogi.
Íbúðin var endurnýjuð að verulegu leyti árið 2018 og hefur verið vel við haldið. Innréttingar og búnaður eru vönduð og eignin er í góðu ástandi.
Íbúðin er skráð 129,9 m² og bílskúrinn 32 m².
Skipulag eignarinnar:
Sérinngangur er í íbúðina. Á efri hæð eru forstofa, hol, bjartar og rúmgóðar stofur, eldhús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi og suðvestursvalir.
Frá íbúðinni er innangengt niður á neðri hæð þar sem eru sérþvottahús og geymsla. Einnig er sérútgangur af neðri hæð.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með innfelldri lýsingu í loftum. Úr stofu er útgengt á góðar suðvestursvalir.
Eldhúsið er mjög rúmgott með glæsilegri og vandaðri innréttingu og innfelldri lýsingu í lofti.
Baðherbergið er með góðri innréttingu, flísum á gólfi og veggjum og baðkari með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergin eru fjögur og eru fataskápar í þremur þeirra.
Fallegt og vandað harðparket er á gólfum íbúðarinnar.
Þvottahúsið er rúmgott með góðri innréttingu og epoxýhúðuðu gólfi. Góð geymsla er á neðri hæð.
Bílskúrinn er 32 m², rúmgóður og hefur verið endurnýjaður að verulegu leyti. Þar er góð bílskúrshurð með rafmagnsopnara.
Vönduð og vel skipulögð fjölskyldueign með fjórum svefnherbergjum og bílskúr á góðum stað í Kópavogi.
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali
Sími 898-3708 – sigurdur@gardatorg.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð

Grenigrund 16

200 Kópavogur
TegundHæðStærð161,9 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.1
128.000.000 kr.791 þ./m²
Byggingarár1963InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2061064Fasteignamat101.250.000 kr.Brunabótamat76.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími545-0800

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑