Um eignina
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir 5.919,0 m2 sumarhúsalóð (leigulóð) staðsett innarlega í Eilífsdal í Kjósarhreppi við Hlíð 51. Frábær staðsetning. Fallegt útsýni er frá lóðinni. Aðeins um 30-40 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu. Stutt er í fallegar gönguleiðir. Heitt vatn, kalt vatn, rafmagn og ljósleiðari er við lóðamörk.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
Á lóðinni er heimilt skv. aðalskipulagi 1 frístundarhús auk gestahúss/skúr/geymsluhúss - allt að 200 m2. Að auki er heimilt að byggja 2 smáhýsi/gróðurhús/gufubað allt að 15 m2 sem er undandskillið heildar fermetra fjölda. Nýr lóðarleigusamningur var gerður 1.júní 2016 og gildir til 1. júlí 2042. Til eru ósamþykktar teikningar af sumarhúsi sem geta fylgt með.
Fallegt og rólegt fjölskylduumhverfi með skemmtilegu leiksvæði innan sumarbústaðasvæðisins. Fjölbreytt aðstaða er til útivistar í næsta nágrenni eins og göngur inn Eilífsdalinn og að Meðalfellsvatni, fjallgöngur, klettaklifur í Valshamri og ísklifur inni í Eilífsdalnum. Sumarbústaðalandið er afgirt, og komið er inn um rafmagnshlið sem aðeins íbúar hafa aðgengi að. Lóðarleiga er kr. 178.000 á ári. Félagsgjald í Valshamar er kr. 120.000 á ári.
Verð kr. 8.900.000, kr.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Hlíð 51
Staðsetning
Allar 14 myndir
Upp ↑












