fasteignasölur.is
Lambamýri 2
1 af 22
EKKI Í SÖLU15. september 2026Eignin er farin úr sölu. Ekki er vitað hvort hún seldist.

Um eignina

Guðný Ösp lgf., s. 665-8909, og fasteignasalan TORG kynnir vel skipulagða þriggja herbergja íbúð með stæði í bílakjallara við Lambamýri 2 
Eignin er samtals skráð á fasteignayfirliti HMS 74,6 m2 en þar af er geymsla 8,5 m2. 

Umrædd eign er nýleg, falleg og björt og er staðsett á 1. hæð með sérafnota reit, sem er skv. grunnteikningu 17,2 m2. Íbúðin snýr í norð-vestur, með fallegu útsýni í átt til Bessastaða. Gengið er inn um sér inngang sem er sunnan megin við húsið.
*** EIGENDUR SKOÐA SKIPTI Á FJÖGURRA HERBERGJA ÍBÚÐ/HÆÐ Á ÁLFTANESI ***

Nánari lýsing: 
Forstofa: flísar á gólfi og fataskápur.
Herbergi I: parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni, sturta, handlaug með innréttingu og pláss fyrir þvottavél og þurrkara. 
Stofa: parket á gólfi, opið og bjart rými, þar sem útgengt er á hellulagðan sérafnotareit sem snýr í norð-vestur með fallegu útsýni í átt til Bessastaða.
Eldhús: parket á gólfi, mikið skápapláss, ofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, gott borðpláss og vinnulýsing. Eldhús og stofa saman í opnu og björtu rými. 
Hjónaherbergi II: parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Geymsla: staðsett í sameign í kjallara, skráð 8,5 m2.
Íbúðin inniheldur loftskiptikerfi sem blæs fersku upphituðu lofti inn í íverurými og dregur loft út af baðherbergjum, og eldhúsi.

Stæði í bílakjallara: staðsett í bílakjallara með rafhleðslustöð, gott aðgengi en unnt er að taka lyftu upp á 1. hæð í sameign í stigagangi og ganga þaðan út að sér inngangi íbúðar á 1. hæð. 

Eignin er vel staðsett á Álftanesi, í göngufæri við skóla, leikskóla og þá er sundlaug og íþrótta hús í um það bil fimm mínótna göngufjarlægð. Næg gestastæði eru á bílaplani sem er staðsett fyrir utan húsið. Þá eru göngustígar frá húsinu í átt að Bessastöðum og að fallegum gönguleiðum í átt að fjörunni.  

Allar nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:  Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.  Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. 
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.  Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og  ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.  Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 



 

Lambamýri 2

225 Garðabær · Álftanes
TegundFjölbýlishúsStærð74,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
Ekki lengur í söluSöluverð liggur ekki fyrirBirtist hér ef eignin seldist og kaupsamningi verður þinglýst.
Ásett verð72.900.000 kr.
Byggingarár2024InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2527643Fasteignamat64.700.000 kr.Brunabótamat62.920.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Sambærilegar eignir í hverfinu

Allar 22 myndir

Upp ↑