fasteignasölur.is
Vesturbakki 10
Nýtt
1 af 8

Um eignina

Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali og Fasteignasalan TORG kynna eignina Vesturbakki 10, 815 Þorlákshöfn, nánar tiltekið eign merkt 02-10, fastanúmer 253-3413 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Vesturbakki 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-3413, birt stærð 40.9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson Löggiltur fasteignasali., í síma 623-1717, tölvupóstur svavar@fstorg.is.

Vandað atvinnuhúsnæði með mikla möguleika á góðum stað í Þorlákshöfn
Um er að ræða steypt og vandað atvinnuhúsnæði að Vesturbakka 10 í Þorlákshöfn. Húsið samanstendur af alls 33 sjálfstæðum einingum, iðnaðarbilum og skrifstofurýmum, frá um 41–69 fm að grunnfleti. Í mörgum rýmanna er möguleiki á að útbúa gott milliloft og auka þannig nýtanlegt rými verulega.

Einingarnar skilast fullbúnar með snyrtingu og gólfhita og möguleiki er á sturtuaðstöðu og eldhúskrók. Hvert rými er með sér rafmagnsinntaki. Lóðin skilast frágengin með malbikuðu bílaplani og afhending er fyrirhuguð fljótlega.
Húsnæðið býður upp á mikla möguleika og hentar undir fjölbreytta atvinnustarfsemi, þjónustu, verkstæði, lager eða geymslur. Tilvalið fyrir verktaka, fyrirtæki eða einstaklinga sem þurfa góða aðstöðu fyrir tæki, bíla, húsbíla eða annan búnað.
Nánari lýsing á bili 202

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS. Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Um er að ræða Vesturbakka 10, bil 202, sem er staðsett á 2. hæð hússins. Skráð stærð er 40,9 fm að grunnfleti og möguleiki er á að útbúa stórt milliloft og nýta þannig lofthæðina enn betur.
Rýmið skilast fullbúið með snyrtingu, eldhúsaðstöðu og sturtu. Bjart og skemmtilegt rými með góðum gluggum og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum. Hentar vel sem skrifstofu- eða vinnuaðstaða, hobbyrými eða fyrir aðra sambærilega notkun.
Skipting hússins

Á 1. hæð eru 22 iðnaðarbil. Bil 101–111 eru með extra háum, um 3,5 metra innkeyrsluhurðum og góðri lofthæð sem býður upp á möguleika á stóru millilofti. Bil 112–122 eru rúmgóð iðnaðarrými með um 2,5 metra innkeyrsluhurðum.

Á 2. hæð eru 11 rými, merkt 201–211, með góðum gluggum og miklum möguleikum varðandi nýtingu. Þar er jafnframt hægt að útbúa gott milliloft og auka þannig nýtanlegt rými.
Úr byggingarlýsingu

Húsið er byggt úr forsteyptum samlokueiningum frá BM Vallá á steyptum sökkli. Þak er úr yleiningum og sperruþak er yfir 2. hæð. Gluggar og hurðir eru ál/tré. Fyrsta hæð verður máluð hvít að utan en 2. hæð er einangruð og klædd álklæðningu.
Gólfhiti er í rýmum á efri hæð og gólf frágengin með niðurföllum og góðum vatnshalla.
Hér er um að ræða vandað og spennandi atvinnuhúsnæði á góðum stað í Þorlákshöfn. Skemmtilegar stærðir, góð lofthæð og miklir möguleikar til fjölbreyttrar nýtingar.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS. Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS. Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS

 

Vesturbakki 10

815 Þorlákshöfn
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð40,9 m²Baðherb.1
20.900.000 kr.511 þ./m²
FasteignanúmerF2533413Fasteignamat905.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 8 myndir

Upp ↑