fasteignasölur.is
Gegnishólapartur 3
1 af 40

Um eignina

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Gegnishólapart 3, Flóahreppi. Snyrtilegt 120,8 fm einbýlishús ásamt 40,4 fm  bílskúr á 1.072 fm eignarlóð rétt rúmlega 11 km utan við Selfoss.  Malbikað alla leið.  Gróið og snyrtilegt umhverfi.

Gengið er inn í forstofu, þar er skápur.  Úr forstofu eru nokkur þrep inn í íbúðina. 
Úr forstofu er gengið inn í þvottahús þar sem hitakútur og hitatúpa fyrir húsið er staðsett.
Úr forstofu er gengið inn í eldhús og eldhúskrók. Hvít IKEA eldhúsinnrétting, innfeld uppþvottavél.
Rúmgóður eldhúskrókur með glugga út í sólstofu
Útgengt er úr eldhúskróki í sólstofu.  Sólstofan er með einangruðu þaki. Gólf plastparketlagt. 
Þrjú svefnherbergi öll með skápum.
Rúmgóð stofa 
Baðherbergi er með innréttingu.  Gólf og veggir eru málaðir. Sturta með hengi. 
Gólfefni eru harðparket á gólfum nema í eldhúsi þar sem eru flísar og málað gólf á baðherbergi, forstofu og þvottahúsi. 
Steyptar stéttar eru framan við hús og meðfram því.  Stór timburverönd er á baklóðinni. 
Garður er með háum trjám

Íbúðarhúsið er byggt 1948 úr steinsteypu. Sólstofa var byggð við húsið um 1995. Húsið er einangrað að utan, tvær hliðar eru múraðar og tvær hliðar með steniklæðningu.  Búið er að skipta um alla glugga í húsinu nema einn glugga og glugga í sólstofu.  Útidyrahurð er nýleg.  Nýlega er búið að endurnýja þakjárn, rennur og þakkant. Húsið er upphitað með hitatúpu og hefðbundnum miðstöðvarofnum. Miðstöðvarlagnir eru eirlagnir.  Hitakútur er fyrir neysluvatn. Nýleg plastrotþró er við húsið. Búið er að drena meðframhúsinu norðan megin.  Ljósar loftaplötur eru í loftum.  Upprunalegar málaðar innihurðar.  Gott geymsluloft er yfir öllu húsinu.  Geymsluloftið er að hluta manngengt.  Utanhúss er fastur járnstigi upp á geymsluloftið. 

Bílskúr er frístandandi frá húsinu. Bílskúrinn er byggður árið 1965 úr holsteini. Búið er að einangrað hann að utan og múra.  Búið er að setja sperrur, einangrun og þakklæðningu ofan á eldra þak. Bílskúrinn er upphitaður með varmadælu. Steypt gólf er bílskúr.  Sturta og klósett er í bílskúrnum.  Flekahurð með opnara. Bílskúrinn er sambyggður annari eign sem er í eigu eigenda Gegnishólaparts.  Brunaveggur er á milli eignarhluta. 

Gegnishólapartur 3 er rétt utan við Selfoss eða rétt rúmlega 11 km. malbikað er alla leið. Í Flóahreppi er starfræktur leikskólinn Krakkaborg og grunnskóli Flóaskóli fyrir 1-10.bekk.   Á Selfossi er að finna fjölbreytta verslun, þjónustu og afþreyingu.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  steindor@husfasteign.is  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Gegnishólapartur 3

803 Selfoss (dreifbýli)
TegundEinbýlishúsStærð161,2 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.1
73.000.000 kr.453 þ./m²
Byggingarár1948InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2199040Fasteignamat49.350.000 kr.Brunabótamat76.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑