fasteignasölur.is
Baugakór 28
1 af 42

Um eignina

Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Virklega falleg og vel skipulögð 5 herbergja (fjögur svefnherbergi) 125,4 fm neðri sérhæð með verönd í Kórahverfinu í Kópavogi. Eignin er í fjórbýli. Sameiginleg hleðslustöð er á bílastæði fyrir framan hús.


Nánari lýsing eignar: 
Forstofa með rúmgóðum fataskáp. Geymsla innaf forstofunni. Frá forstofu tekur við rúmgott hol. 
Stofan og borðstofan eru í samliggjandi opnu rými og þaðan er unnt að ganga út á afgirtan timburpall sem snýr til suðurs og suðvesturs. 
Eldhúsið er með fallegri innréttingu sem nær alveg upp í loft og er opið við stofu og borðstofu.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur. 
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum en í dag er búið að breyta innra skipulagi eignarinnar þannig að svefnherbergin eru fjögur. 
Þvottahúsið er með hillum og glugga. 
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og Walk in sturta, hiti í gólfi, handklæðaofn og gluggi. 

Sameiginlega hjóla- vagnageymsla er á hæðinni.

Eignin hefur sérafnotarétt á lóðarhluta 26,7 fm fyrir vestan húsið. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra mhl 01 samkvæmt hlutfallstölu hennar í sameign allra mhl 01 og hlutdeild í lóð samkvæmt hlutfallstölu í lóð. Á lóðinni eru átta bílastæði og fylgja tvö hverri séreign. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Baugakór 28

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð125,4 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.1
109.900.000 kr.876 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2281350Fasteignamat84.000.000 kr.Brunabótamat65.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑