fasteignasölur.is
Bjarkarbraut 3 efri hæð
1 af 22

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Bjarkarbraut 3 Dalvík - Vel skipulögð og vel staðsett 4ra herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi með sér inngangi - stærð 109,8 m²


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, búr, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi á hæðinni. Á neðri hæðinni er sameiginlegur inngangur og sameiginlegt þvottahús. 

Forstofa er með flísum á gólfi, hengi og skáp. Fyrir framan er steyptur pallur og steyptur stigi. Úr forstofu er gengið inn á gang með flísum á gólfi og þar er innfelldur skápur. 
Eldhús, plastlögð eldri innrétting og skemmtilegur gluggi með útsýni út á fjörðinn. Ljóst plastparket er á gólf og ágætur borðkrókur. Úr eldhúsi liggur steyptur og teppalagður stigi niður á neðri hæðina þar sem er sameiginlegt þvottahús og sameiginlegur inngangur. 
Búr er inn af eldhúsinu með dúk á gólfi, hillum og glugga. 
Stofa er með parketi á gólfi og hornglugga til suðurs og vesturs. 
Svefnherbergin eru þrjú, tvö með dúk á gólfi og eitt með parketi. Fataskápar eru í tveimur herbergjum. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga. 

Þvottahús er í sameign og staðsett á neðri hæðinni. Þar er lakkað gólf, skolvaskur og opnanlegir glugga. 

Annað
- Gluggar eru upprunalegir en gler og opnanleg fög hefur verð endurnýjað að stærstum hluta. 
- Hluti ofna hefur verið endurnýjaður. 
- Lóðin er leigulóð í eigu Dalvíkurbyggðar, 750 m² að stærð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Bjarkarbraut 3 efri hæð

620 Dalvík
TegundFjölbýlishúsStærð109,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
36.500.000 kr.332 þ./m²
Byggingarár1947InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2154688Fasteignamat34.600.000 kr.Brunabótamat52.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑