fasteignasölur.is
Skúlagata 5
Opið hús 21. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 31

Um eignina

Nes fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Skúlagata 5, 310 Borgarnes.
Um er að ræða rúmgóða 3ja herbergja endaíbúð með sérinngangi af svölum á efri hæð í góðu tveggja hæða fjölbýlishúsi sem byggt er úr forsteyptum einingum árið 2008. Íbúðin er merkt 010201 og er 90,0 fm að stærð skv. skráningu HMS.


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi, geymslu og alrými sem samanstendur af eldhúsi borðstofu og stofu. Sameigninleg hjóla og vagnageymsla er stakstæð við húsið. Gólfhiti er í allri íbúðinni.

Forstofa: Flísar á gólfi og góður fataskápur.
Baðherbergi: Er mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, hvít innrétting og sturtuklefi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi: Flísar á gólfum og fataskápar í báðum.
Geymsla: Rúmgóð, innan íbúðar. Flísar á gólfi, nú nýtt sem auka herbergi.
Stofa: Björt og rúmgóð, flísar á gólfi. Gengið úr stofu út á SV svalir með góðu útsýni.
Eldhús: Góð hvít innrétting. Helluborð og bakarofn.  Uppþvottavél og ísskápur í innréttingu.
 
Hér er mjög falleg íbúð á góðum stað  þar sem öll þjónusta s.s. verslun, skóli og íþróttahús eru í göngufæri.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:
Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.
Engin umsýsluþóknun.

Skúlagata 5

310 Borgarnes
TegundFjölbýlishúsStærð90 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
57.000.000 kr.633 þ./m²
Byggingarár2008InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2307537Fasteignamat47.700.000 kr.Brunabótamat56.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgarbraut 57, 310Sími497-0040

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 31 myndir

Upp ↑