fasteignasölur.is
Engjavegur 14
1 af 13

Um eignina

BetriStofan kynnr: Einstaka einbýlishúsalóð á fallegum stað við Varmá, Mosfellsbæ.
Við Engjaveg í Mosfellsbæ er nú til sölu óvenju stór, og falleg einbýlishúsalóð á einstaklega fallegum og grónum stað. Lóðin nýtur mikillar friðsældar og liggur að Varmá þar sem fallegt náttúruumhverfi, trjágróður og útivistarsvæði mynda einstaka umgjörð.  
Staðsetningin er einstök þar sem náttúran er við bæjardyrnar en jafnframt stutt í alla helstu þjónustu. Reykjalundur og útivistarsvæðin í nágrenninu setja svip sinn á umhverfið og bjóða upp á fjölbreyttar göngu- og útivistarleiðir allt árið um kring.
um er að ræða óvenju stóra lóð, 2068 fm. samkvæmt gögnum HMS sem býður upp á einstakt tækifæri til að byggja glæsilegt einbýlishús í rólegu og grónu hverfi þar sem náttúrufegurð, næði og fjölskylduvænt umhverfi fara saman.

Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að eignast stórt byggingarland á einum fallegasta stað Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar veitir: Guðbjörg Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899 5533,  gudbjorg@betristofan.is,
 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Engjavegur 14

270 Mosfellsbær
TegundJörð/LóðStærð0 m²
Tilboð
FasteignanúmerF2330927Fasteignamat20.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑