1 af 22
Um eignina
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Geldingsá - lóð nr. 24
Um er að ræða lítinn sumarbústað með aðstöðuhúsi við hlið þess á skemmtilegum stað í Vaðlaheiðinni með útsýni yfir Eyjafjörðinn í átt til Akureyrar. Samtals eru húsin 31,3 fm., þar af er aðstöðuhús skráð 7,6 fm. en rafmagnspottur er á milli húsanna.
Húsin standa á rétt tæplega 3500 fm. leigulóð í Heiðarbyggðar hverfinu í Vaðlabyggð.
Bústaðurinn er óeinangraður utan botnplötu sem er einangruð. Komið er inn í opið rými þar sem er að finna litla eldúsinnréttingu með gaseldavél og ísskáp. Þá er kamína staðsett í rýminu til upphitunar auk rafmagnsofna sem fylgja með við sölu. Í útskoti frá aðalrými er þrep niður í svefnherbergi.
Ágæt verönd er fyrir utan bústaðinn og timburpallur er á milli aðalhúss og aðstöðuhúss þar sem er bæði sturta og salerni. Milli húsanna er gamall rafmagnspottur sem virkar en klæðning utan á honum og fleira er farið að láta á sjá.
Annað:
-Hitakútur er norðan við aðstöðuhúsið
-Virkilega fallegt útsýni er yfir Eyjafjörðinn
-Lóð er að miklu leiti ósnert en bílastæði er fyrir tvo bíla.
-Bústaðurinn hefur verið í útleigu á Airbnb
-Búið er að skipta um allar vatnslagnir þar sem fyrri frostsprungu
-Búið verður að setja hitaþráð með vatnslögnum fyrir afhendingu
-Mikill gólfhalli er í húsinu og hallar í raun allt húsið - að sögn eiganda vegna snjóþunga sem lagðist á pallinn á árum áður
-Parket á gólfi er víða orðið lélegt
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955
Geldingsá nr. 24
606 Akureyri (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð31,3 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
16.000.000 kr.511 þ./m²
Byggingarár2005InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2277888Fasteignamat16.150.000 kr.Brunabótamat25.170.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 22 myndir
Upp ↑




















