Opið hús 19. sept. kl. 15:15–15:45
1 af 34Um eignina
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Glæsilega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða tveggja herbergja íbúð sem auðvelt er að breyta í þriggja herbergja. Íbúðin er 82,5 m² og er á þriðju hæð í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi við Lönguhlíð 19, 105 Reykjavík.
Frá íbúðinni er fallegt útsýni að Perlunni, yfir Klambratún, að Hallgrímskirkju og víðar.
Mögulegt er að færa eldhúsið inn í stofuna og nýta núverandi eldhús sem svefnherbergi. Lagnir og tengingar eru þegar til staðar. Með þessari breytingu yrði íbúðin þriggja herbergja.
Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðarrýmið 68,0 m². Að auki fylgir 9,4 m² herbergi í risi, sem skráð er sem geymsla, ásamt 5,1 m² sérgeymslu í kjallara. Heildarstærð eignarinnar er því 82,5 m².
Smelltu á hlekkinn til að skoða íbúðina í þrívídd
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgott hol með harðparketi á gólfi. Parketið er samfellt um alla íbúðina að undanskildu baðherberginu, sem er flísalagt.
Eldhúsið er glæsilegt og bjart. Eldhúsinnréttingin hefur verið endurnýjuð að hluta og eldri hluti hennar gerður upp. Þar eru kvarssteinsborðplötur og gott skápa- og skúffupláss. Eldhúsið er útbúið spanhelluborði, undirlímdum vaski og innbyggðri uppþvottavél. Tengi og rými eru fyrir ísskáp.
Stofan er stór, rúmgóð og björt, með útgengi á svalir sem snúa í suðvestur. Þaðan er fallegt útsýni að Perlunni, yfir Klambratún, að Hallgrímskirkju og víðar. Tengi og lagnir eru í enda stofunnar svo hægt sé að færa eldhúsið þangað.
Baðherbergið er mjög smekklegt og nýlega endurnýjað, með fallegri innréttingu og glæsilegum flísum. Þar er sérsmíðuð baðinnrétting með kvarssteinsborðplötu og undirlímdum vaski. Einnig eru þar innfelld VOLA-blöndunartæki, sturtuskilrúm úr gleri, upphengt salerni og fallegur, hringlaga gluggi sem hægt er að opna.
Hjónaherbergið er rúmgott og bjart og þar er gott skápapláss.
Í risinu er 9,4 m² herbergi (skráð sem geymsla) með parketi á gólfi sem fylgir íbúðinni. Þar sem herbergið er undir súð er gólfflöturinn nokkuð stærri en skráð fermetratal gefur til kynna. Í herberginu er opnanlegur gluggi.
Í kjallara er 5,1 m² sérgeymsla ásamt sameiginlegu og snyrtilegu þvottahúsi.
Endurnýjun innan íbúðar.
Árið 2025 var dregið nýtt rafrmagn í íbúðina og tafla endurnýjuð.
Árið 2024 var farið í gegnum fataskáp í svefnherbergi til að koma leiðslum fyrir, til að hafa möguleika á að færa eldhús inn í stofu líkt og íbúðin á hæðinni fyrir neðan og ofan hafa gert. Tengi komið þar ef fólk hefur áhuga á að færa eldhús.
Árið 2023 var baðherbergi endurnýjað. Baðkar tekið og sturta sett í staðinn. Innrétting smíðuð af Formus.
Árið 2022 voru allir gluggar endurnýjaðir innan íbúðarinnar.
Árið 2019 var eldhús endurnýjað á smekklegan hátt, ofn og helluborð Siemens
Árið 2018 var skipt um parket birgisson til 1 kassi niðri í geymslu.
Endurnýjun á ytra byrði hússins, Langahlíð 19-23
Árið 2014 var þakjárn og þakpappi endurnýjað.
Árið 2018 voru framkvæmdir á sameiginlegu baði uppi á 5. hæð í Lönguhlíð 19 (skipt um flísar, skáp og blöndunartæki)
Árin 2020-2022 voru allir gluggar í húsinu yfirfarnir af Verksýn ehf, skipt um alla þá glugga sem nauðsynlegt var. Jafnfram var farið í múrviðgerðir, ný steining sett utaná húsið, kopar þakrennur, dyrasímar endurnýjaðir, útihurð pússuð upp og lökkuð.
Við framkvæmdir hússins var stuðst við upprunalegt útlit og unnið eftir tillögum Húsafriðunarnefndar Reykjavíkur.
Lóðin er stór með hellulagðri stétt, grasflöt að framan, sameiginlegum bílastæðum bakatil og er í óskiptri sameign hússins.
Virkilega hugguleg og vel staðsett eign miðsvæðis í Reykjavík þaðan sem stutt er í leikskóla, barnaskóla, Háskóla, Kringluna, Sundhöllina, Klambratún og miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.

Langahlíð 19
105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð82,5 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
69.900.000 kr.847 þ./m²
Byggingarár1949InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2013483Fasteignamat64.350.000 kr.Brunabótamat44.000.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 34 myndir
Upp ↑