fasteignasölur.is
Naustavör 9
Opið hús 22. sept. kl. 17:30–18:00
1 af 40

Um eignina

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir einstaklega fallega og vandaða 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu fjölbýlishúsi við Naustavör í Kópavogi.
Íbúðin skiptist í rúmgott anddyri, stílhreint eldhús með eyju, rúmgóða stofu með útgengi á svalir, stórt svefnherbergi með fataherbergi, flísalagt baðherbergi, sér þvottahús, geymsla í kjallara. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás, vönduð tæki. Gólfhiti.
Sér merkt bílastæði á lóð. Birt stærð íbúðar er 79,5fm, geymsla í kj. 8,3fm, samtals birt stærð 87,8fm. 

NÁNARI LÝSING:
Anddyri er rúmgott með dökkum fataskápum upp í loft, parket á gólfi.  
Stofa/borðstofa bjart og rúmgott parketlagt rými með útgengi á rúmgóðar 9,9fm vestur svalir með glerhandriði, fyrirliggjandi eru teikningar og samþykki fyrir svalalokun. Opið frá stofu/borðstofu inn í eldhús.
Eldhús er bjart með eyju með góðu skúffuplássi, helluborð og gufugleypir, innréttingin frá Brúnás nær upp í loft með miklu skápaplássi, innbyggð uppþvottavél, bakarofn og örbylgjuofn, parket á gólfi. 
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp á heilum vegg sem nær upp í loft, parket á gólfi..
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum, skápainnrétting, upphengt wc, handklæðaofn, walk-in sturtuklefi með innbyggðum tækjum. 
Þvottaherbergi með ljósum flísum á gólfi, innréttað með skápum, vaskur og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sameign er mjög snyrtileg, vandaðar flísar á gólfum í anddyri, inn að lyftu og niður í kjallara, gólf geymslu og geymsluganga eru máluð með epoxy málningu.
Bílastæði er sérmerkt á lóð, tengimöguleikar fyrir raftengi.

Gólfhiti er í allri íbúðinni. Svalir eru 9,9fm. Nóg af auka bílastæðum á lóð. Snjóbræðsla í göngustígum framan við húsið. Glæsilegt leiksvæði ásamt fótboltavelli fyrir utan húsið. 

Húsið er byggt árið 2019 af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf.
Hönnuðir: Arkitektar: Guðmundur Gunnlaugsson (Archus) og Gunnar Páll Kristinsson (Rýma arkitektar). Verkfræðihönnun: Teiknistofa Þráinn & Benedikt. Raflagnahönnun: Tesla rafmagnshönnun.


Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is. 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.




 

Naustavör 9

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð87,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
82.900.000 kr.944 þ./m²
Byggingarár2019InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2503630Fasteignamat88.100.000 kr.Brunabótamat58.800.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑