fasteignasölur.is
Holtsvegur 37
Opið hús 20. sept. kl. 12:00–12:30
1 af 33

Um eignina

Nýtt á skrá! Holtsvegur 37 Garðabæ / Rúmgóð og vel skipulögð 4ra herb. íbúð með stórum hellulögðum sérafnotareiti til suðurs, þvottaherbergi og sérstæði í bílakjallara!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallega, rúmgóða og vel skipulagða 4ra herbergja 112,5 fermetra íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli við Holtsveg 37 í Garðabæ. Íbúðin er með rúmgóðum sérafnotafleti til suðurs og sérbílastæði í bílakjallara. Þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla sem er 11,0 fermetrar í kjallara. 

Húsið er afar fallegt byggt árið 2016 með fallega frágenginni lóð. Hellulagðar stéttar og malbikuð sameiginleg stæði fyrir framan hús. Myndavéladyrasími er í íbúð og er sameign snyrtileg og til fyrirmyndar. Hjóla- og vagnageymsla er staðsett á jarðhæð hússins.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í Urriðaholti Garðabæ. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð ásamt leiksvæðum. Afar fallegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni um Heiðmörk, Urriðavatn og víðar. 

Lýsing eignar:
Sérinngangur af opnum gangi.

Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Alrými samanstendur af stofu (borðstofu og setustofu) og eldhúsi.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu frá AXIS með stórri eldhúseyju og kvartz steini á borðum. AEG bakaraofn, spansuðu helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi til suðausturs og suðvesturs. Lýsing undir efri skápum. Eldhús er opið við borðstofu/stofu.
Stofa: Með harðparketi á gólfi. Stofa er mjög vel skipulögð og rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til suðvesturs og útgengi á sérafnotflöt.
Sérafnotaflötur: Er stór með hellulagðri verönd og snýr til suðurs.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skáp og glugga til suðvesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skáp og glugga til norðvesturs.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask með steini á borði. Upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi til norðvesturs. 
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi. Vinnborð og tenglar fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi til norðvesturs.

Bílastæði: Sérstæði í bílakjallara. Merkt 204.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett í sameign hússins. 
Sér geymsla: Er staðsett á sömu hæð og íbúð og er 11,0 fermetrar að stærð.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Holtsvegur 37

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð112,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
92.900.000 kr.826 þ./m²
Byggingarár2016InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2352618Fasteignamat97.700.000 kr.Brunabótamat77.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑