fasteignasölur.is
Langalína 24
Opið hús 23. sept. kl. 17:30–18:00
1 af 36

Um eignina

Falleg 3ja herbergja íbúð á annarri hæð við Löngulínu 24 í Garðabæ. Eignin er 125,6 fm að heildarstærð og skiptist í 117,4 fm íbúð og 8,2 fm sérgeymslu. Að auki fylgir eigninni sérmerkt stæði í bílageymslu, B11. Byggingaverktaki hússins var Bygg.

Íbúðin er einstaklega vel skipulögð og björt og býður upp á rúmgóð og notaleg rými.

Forstofa er með harðparketi á gólfi og góðum skápum. Úr forstofu er komið inn í hol/alrými og sjónvarpshol, einnig með harðparketi.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar, með harðparketi á gólfi og útgengi á suðursvalir, sem eru 8,2 fm.
Eldhúsið er opið inn í stofuna og myndar fallegt og notalegt samverurými. Þar er harðparket á gólfi, eyja, stæði fyrir uppþvottavél, helluborð, háfur og ofn í vinnuhæð.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, bæði með harðparketi á gólfi. Skápar eru í öðru herberginu og inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með snyrtilegri innréttingu og sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar, með flísum á gólfi og góðri innréttingu.
Í kjallara er 8,2 fm sérgeymsla auk sérmerkts stæðis í bílageymslu. Einnig er hefðbundin sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Húsið er vel staðsett, stutt frá Jónshúsi, félags- og þjónustumiðstöð, auk þess sem falleg náttúra og góðar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.
Virkilega vel skipulögð, björt og rúmgóð eign á eftirsóttum og fjölskylduvænum stað í Sjálandshverfi í Garðabæ.


Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is


Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Langalína 24

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð125,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
121.900.000 kr.971 þ./m²
Byggingarár2016InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2348717Fasteignamat114.200.000 kr.Brunabótamat86.090.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑