fasteignasölur.is
Núpalind 8
1 af 16

Um eignina

Miklaborg kynnir: Falleg og vel skipulögð þriggja herbergja 120 m2 útsýnisíbúð á 7. hæð (efstu) í viðhaldslitlu fjölbýli í Núpalind í Kópavogi. Íbúðin er skráð 120 m2 en auk þess fylgir íbúðinni stæði í bílageymslu um 14 m2. Alls er eignin því 134 m2. Á hæðinni eru aðeins tvær íbúðir. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, búr, þvottahús, baðherbergi, stofu, borðstofu, sjónvarpsherbergi, geymslu, stórar yfirbyggðar svalir (16 m2) og stæði í bílastæðahúsi.

Innan íbúðar er óskráð rými, sem er ekki inni í fermetratölunni. Þar hefur verið útbúin mjög rúmgóð setustofa/sjónvarpsherbergi og síðan stór geymsla. Alls er þetta rými um 42 fm að gólffleti og þar af eru 24 fm með lofthæð yfir 180 cm.


Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með góðum skápum. Flísar á gólfi.

Svefnherbergin eru tvö, bæði björt og rúmgóð með góðum skápum. Parketi á gólfi.

Stofa og borðstofa eru í björtu rúmgóðu alrými með stórum gluggum og miklu útsýni til suð-vesturs, útgengi út á stórar yfirbyggðar svalir sem snúa í suð-vestur. Parket á gólfi.

Eldhús er snyrtilegt og rúmgott með góðri innréttingu og góðu vinnuplássi, ofni í vinnuhæð, helluborði, háf og plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Parket á gólfi.

Búr er inn af eldhúsinu. Parket á gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar með skáp og skolvask og plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, salerni og innréttingum.

Sjónvarpsherbergi er mjög rúmgott en gluggalaust og undir súð að hluta. Parket á gólfi.

Geymslan er innan íbúðar og er mjög rúmgóð en undir súð að hluta. Málað gólf.


Sjónvarpsherbergi og geymsla eru óskráð rými og ekki inni í uppgefinni stærð og eru ekki þinglýstur eignarhluti íbúðar, en nýtist engu að síður eingöngu af þessari íbúð. Rýmið býður upp á mikla möguleika í nýtingu.


Núpalind 8 er staðsteypt steinhús byggt árið 1999 með einum stigagangi með lyftu, einangrað að utan og klætt með plötuklæðningu. Gluggar eru álklæddir timburgluggar með þreföldu einangrunargleri. Örstutt er í Lindaskóla, leikskóla, verslanir og göngu- og hjólaleiðir. Stigagangur og önnur sameign er sérlega snyrtileg. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.


Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning.


Nánari upplýsingar veitir

Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is

Núpalind 8

201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð134 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
94.900.000 kr.708 þ./m²
Byggingarár1999InngangurSameiginlegurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2234972Fasteignamat95.650.000 kr.Brunabótamat73.030.000 kr.
Skráð hjá
Óskar Sæmann AxelssonLöggiltur fasteignasali691-2312 · osa@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑