fasteignasölur.is
Valhallarbraut 757
1 af 9

Um eignina

Snyrtileg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð auk geymslu við Valhallarbraut 757. Þvottaaðstaða er innan íbúðar. 

Eignin er skráð alls 44,3fm. og þar af er geymsla íbúðar 3,8fm. 

Nánar um eignina:

Anddyri/hol með fatahengi og teppi á gólfi. Í holi er tengi fyrir þvottavél. 
Eldhús og stofa í einu opnu rými með snyrtilegri eldhúsinnréttingu og parketi á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með teppi á gólfi. 
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, innréttingu og dúk á gólfi. 

Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík. Á Ásbrú er stutt í alla þjónustu og skóla.

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Valhallarbraut 757

262 Reykjanesbær · Reykjanes
TegundFjölbýlishúsStærð44,3 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
31.900.000 kr.720 þ./m²
Byggingarár1956InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2511380Fasteignamat24.950.000 kr.Brunabótamat27.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangVegmúli 4, 108 ReykjavíkSími546-5050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 9 myndir

Upp ↑