fasteignasölur.is
Friggjarbrunnur 1
1 af 23

Um eignina

Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna eignina Friggjarbrunnur 1, 113 Reykjavík. Mjög falleg tveggja herbergja íbúð við Friggjarbrunn 1. Eignin er skráð 86,5 fm og skiptis í forstofu, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þvottahús og tvær geymslur ásamt stórum sólpalli og bílastæði í bílageymslu. 

Nánari lýsing: Komið er inn í góða forstofu með góðum fataskáp. Frá forstofu er sér þvottahús til vinstri og baðherbergi til hægri. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, sturtu og upphengdu salerni. Þvottahúsið er með flísar á gólfi, með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara og getur einnig nýst sem geymsla. Eldhúsið er mjög stóri og góðri ítalskri innréttingu frá Aran Cucine, bakstursofni, helluborði og viftu frá Electrolux. Stofa og borðstofa er rúmgóð, opin og björt með útgengi út á 37 fm sólpall sem snýr í suð-vestur. Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum. Eigninni fylgir tvær geymslur. Önnur er 5 fm og er staðsett beint fyrir framan íbúðina og hin er 7,7 fm og er staðsett í kjallaranum. Einnig fylgir eigninni bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu. Harðparket er á gólfum íbúðarinnar fyrir utan votrými en þar eru flísar. Íbúðin er með innfeldri lýsingu að hluta, gólfhita, danfoss stýringu og aukinni lofthæð. 

Um er að ræða einstaklega rúmgóða og bjarta eign á frábærum stað við Úlfarsárdal. Eitt af einkennum hverfisins er mikil nánd við náttúruna og í göngufæri við hverfið eru náttúruperlur eins og Úlfarsfellið, Reynisvatn, Hafravatn og Hólmsheiðin.

Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is

Friggjarbrunnur 1

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundFjölbýlishúsStærð86,5 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
69.900.000 kr.808 þ./m²
Byggingarár2013InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2326043Fasteignamat72.650.000 kr.Brunabótamat59.590.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 6, 108 ReykjavíkSími511-7030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑