Um eignina
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína.
Eignin er skráð samkvæmt HMS 152,3 fm og þar af er bílskúr skráður 24,4 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með parket á gólfi og góðan yfirhafnaskáp. Gólfhiti í forstofu.
Gestasalerni við forstofu. Flísar á gólfi og gluggi.
Stofa er rúmgóð með parket á gólfi.
Borðstofa við eldhús með flísar á gólfi. Útgengt á góðan pall og út í garð.
Eldhús sem er í góðu alrými með stofu og borðstofu með fallegri upprunalegri innréttingu, ofn í vinnuhæð og örbylgjuofn þar fyrir ofan, innb. uppþvottavél, eyja með góðum skúffum, helluborði og stein borðplötu.
Steyptu parketlagður stigi með álhandrið upp á efri hæð.
Sjónvarpsstofa/hol með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góða "walk-in" sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, glugga og góða innréttingu og skáp. Endurnýjað 2021.
Svefnherbergi eru 3 og öll rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt á sitthvorar svalirnar úr tveim herbergjanna.
Þvottahús er rúmgott með góða fataskápa öðru megin og efri og neðri skápa á móti og skolvask. Flísar á gólfi.
Aukin lofthæð að hluta á efri hæð og geymsluloft yfir hluta hæðarinnar.
Bílskúr er rúmgóður með bæði heitt og kalt vatn, hitaveitu og rafmagn. Gönguhurð á hlið bílskúrs og ný rafdrifin bílskúrshurð.
Flott fjölskyldueign á frábærum stað á Holtinu í Hafnarfirði. Leik- og grunnskóli í göngufæri sem og Hvaleyrarvöllur. Stutt niðrá höfn og í miðbæ og hjarta Hafnarfjarðar og alla helstu þjónustu. Góðar gönguleiðir í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Klapparholt 6
Staðsetning
Allar 45 myndir
Upp ↑











































