fasteignasölur.is
Baugakór 13
Opið hús 20. sept. kl. 16:00–16:30
1 af 19

Um eignina

***Seljandalán í boði*** LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) ásamt stæði í bílageymslu í snyrtilegu lyftuhúsi við Baugakór 13 í Kópavogi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, m.a. gólfefni, hurðar og eldhúsinnrétting. Tvö rúmgóð svefnherbergi, eldhús og stofa í opnu, björtu rými með útgengi á góðar suðursvalir, fallegt útsýni. Sér þvottahús innan íbúðar. Húsið var endurbætt að utan árið 2023, sléttir fletir, gluggar og svalahurðir voru málaðir, steinaðir hlutar þrifnir og sílanbornir. Skipt var um teppi á stigagangi og hann málaður. Falleg eign á besta stað í afar fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í matvöruverslanir, skóla, leikskóla og sundlaug. Íþróttamiðstöðin Kórinn er steinsnar frá sem og náttúruperlurnar Elliðavatn, Heiðmörk og Guðmundarlundur. 

Íbúð 302:
Forstofa:
Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, hvít innrétting með eyju og góðu skápaplássi. Eldhús og stofa eru í opnu, björtu rými.
Stofa: Parket á gólfi, útgengi á 9,4 fm suðursvalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, eikarinnrétting með dökkri borðplötu, sturta, baðkar, upphengt salerni. 
Þvottahús er innan íbúðar. Borðplata með skolvaski, hvítir efri skápar, opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla (7,2 fm) í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.  

Baugakór 13

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð110,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
84.900.000 kr.771 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF2280289Fasteignamat82.950.000 kr.Brunabótamat68.610.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑