fasteignasölur.is
Berghólar 16
1 af 33

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og björt 161,6 m² eign með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými og bílskúr.
  • Vinsælt og fjölskylduvænt hverfi á Selfossi
  • Þrjú svefnherbergi
  • 42,3 m² bílskúr
  • Baðherbergi með baðkari og sturtu
Birt stærð eignar er 161,6 m² samkv. HMS. Þar af er íbúðarhluti 119,3 m² og bílskúr 42,3 m².

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu- og borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílskúr og rúmgóðan pall.
Nánari lýsing eignar
Forstofa: Björt og snyrtileg forstofa með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.
Eldhús: Fallegt og opið eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápa- og vinnuplássi ásamt eyju með sæti. Eldhúsið er í sameiginlegu rými með stofu og borðstofu og myndar þannig fallegt og opið alrými.
Stofa- og borðstofa: Bjart og rúmgott alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús tengjast vel saman. Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið og þar er gott pláss fyrir bæði borðstofu- og setustofuaðstöðu.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott herbergi með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi III: Bjart herbergi með góðu skápaplássi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með bæði baðkari og sturtu, upphengdu salerni og hvítri innréttingu við handlaug. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Sér þvottahús með vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr: Rúmgóður 42,3 m² bílskúr sem býður upp á gott rými. 
Pallur: Við eignina er rúmgóður pallur sem býður upp á notalega aðstöðu utandyra. Þar er gott pláss fyrir bæði borð- og setuaðstöðu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Berghólar 16

800 Selfoss
TegundRað-/parhúsStærð161,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
91.900.000 kr.569 þ./m²
Byggingarár2016InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2358379Fasteignamat94.750.000 kr.Brunabótamat81.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑