fasteignasölur.is
Fannborgartangi 2-fokhelt
1 af 20

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulögð 164,5 m² íbúð í byggingu á Flúðum, með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og 38,3 m² bílskúr 
  • Frábært tækifæri til að búa sér til fallegt framtíðarheimili eða til þess að klára og endurselja fullbúið.
  • Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi samkvæmt teikningum
  • 38,3 m² bílskúr og innangengt á milli íbúðar og bílskúrs
  • Eignin er skráð á byggingarstigi B2 – fokhelt
  • Möguleiki er á að kaupa eignina í núverandi ástandi eða fullbúna gegn hærra kaupverði
  • Möguleiki er á kaupum á Fannborgartanga 4 samhliða eigninni
Birt stærð eignar er 164,5 m² samkvæmt HMS, þar af er íbúðarrými 126,2 m² og bílskúr 38,3 m².

Nánari upplýsingar veita:
Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í  S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Samkvæmt teikningum skiptist eignin í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr.

Núverandi ástand eignar
Eignin er skráð á byggingarstigi B2 – fokhelt samkvæmt HMS og verður afhent í því ástandi sem hún er við sölu, nema sérstaklega sé samið um fullbúna afhendingu.
Gatnagerðargjöld, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa hafa verið greidd. Inntaksgjöld vegna rafmagns, kalds vatns og hitaveitu eru ógreidd. Skipulagsgjald er jafnframt ógreitt og kemur til greiðslu síðar.
Lagnir: Frárennslislagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu. Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu en ótengdar við tengikistur og nema. Rör-í-rör kerfi fyrir neysluvatn er undir botnplötu en ótengt.
Húsið er timburhús. Útveggir eru úr styrkleikaflokkuðu timbri með krossviði til stífingar og loftunargrind. Að utan er húsið klætt með lituðu báruáli og timburklæðningu. Á þaki er svört bárujárnsklæðning og gluggar og útihurðir eru úr áli og timbri.
Bílskúr er 38,3 m². Samkvæmt skilalýsingu er gert ráð fyrir tvöföldu gifsi á brunavegg bílskúrsmegin og einföldu lagi íbúðarmegin, auk tvöfalds gifslags á lofti og útveggjum. Rafmagn í bílskúr er gert ráð fyrir utanáliggjandi.
Lóð er grójöfnuð og búið er að jarðvegsskipta í bílaplani. Innkeyrsla skilast með grófjafnaðri grús.
Seljendur geta einnig tekið að sér að fullklára eignina og er því möguleiki á að kaupa hana fullbúna gegn hærra kaupverði. Nánari upplýsingar um fullbúna afhendingu og skilalýsingu fást hjá fasteignasala.

Staðsetning
Flúðir eru notalegt og fjölskylduvænt samfélag í Hrunamannahreppi, umkringt fallegri náttúru. Á Flúðum er öll helsta þjónusta til staðar, meðal annars leik- og grunnskóli, verslun, sundlaug og íþróttaaðstaða. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta rólegs og fallegs umhverfis með góða þjónustu í næsta nágrenni.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fannborgartangi 2-fokhelt

846 Flúðir
TegundRað-/parhúsStærð164,5 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
54.900.000 kr.334 þ./m²
Byggingarár2026BílskúrFasteignanúmerF2533299Fasteignamat86.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑